Fyrirtækið The Icelandic Milk and Skyr Corporation, sem var stofnað af Sigurði Kjartani Hilmarssyni árið 2006 og er að stærstum hluta í eigu Íslendinga, er langt komið í viðræðum við áhugasama fjárfesta í Bandaríkjunum um sölu á öllu fyrirtækinu fyrir tæplega 300 milljónir dala, jafnvirði um 30 milljarða íslenskra króna.
Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
Í október var frá því greint að JP Morgan bankinn væri nú með fyrirtækið til sölu, en gert er ráð fyrir að tekjur þess á næsta ári verði meiri en 200 milljónir Bandaríkjadala, eða um 22 milljarðar króna, en vöxturinn framundan er áætlaður um 50 prósent árlega, samkvæmt umfjöllun CNBC um söluferlið.
Check it out! https://t.co/C18E2Jzg1J
— Siggi Hilmarsson (@siggihilmarsson) December 11, 2017
Vörur fyrirtækisins, sem eru seldar undir vörumerkinu Siggi’s skyr, eru fáanlegar í um 25 þúsund verslunum í öllum ríkjum Bandaríkjanna. Í Fréttablaðinu kemur fram að fyrirtækið sé að 75 prósent hluta í eigu Sigurðar og ættingja hans, vina og annarra sem þeim tengjast.
„Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins nemur eignarhlutur Sigurðar um 25 prósentum en aðrir Íslendingar sem eiga umtalsverðan hlut í fyrirtækinu eru meðal annars feðgarnir Ingimundur Sveinsson arkitekt og Sveinn Ingimundarson. Þá á svissneski mjólkurframleiðandinn Emni Group um fjórðungshlut sem félagið eignaðist í árslok 2013,“ segir í umfjöllun Fréttablaðsins.