Skipun nefndar um endurskoðun laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem forsætisráðuneytið sendi frá sér í dag.
Markmiðið með nefndinni er meðal annars að leita leiða til að tryggja fjármögnun, sjálfstæði og lýðræðisleg vinnubrögð og gagnsæi í starfsemi allra starfandi stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi, óháð stærð þeirra, segir í tilkynningunni.
Í frétt Kjarnans sem birtist í fyrradag kemur fram að fulltrúar sex stjórnarmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi hafi farið fram á að stjórnmálaflokkar fái 362 milljóna króna viðbótarframlag á fjárlögum næsta árs til viðbótar við þær 286 milljónir króna sem flokkarnir áttu að fá.
Heildarframlag til þeirra, verði erindi flokkanna samþykkt, verður þá 648 milljónir króna. Framlagið mun því aukast um 127 prósent ef af hækkuninni verður.
Tækifæri til að jafna aðstöðu flokkanna
Í tilkynningu ráðuneytisins kemur jafnframt fram að töluverðum hluta af framlögum ríkisins til stjórnmálaflokka sé ráðstafað í kostnaðarliði sem eru óháðir fylgi eða fjölda þingmanna. Þar megi nefna skrifstofurekstur, félagsheimili, félagatal, lágmarks starfsmannahald og lögbundna skyldu til bókhalds og endurskoðunar á ársreikningum sem skila ber ár hvert til Ríkisendurskoðunar.
Með fjölgun flokka á Alþingi hafi hlutfall fjármuna sem varið er í rekstur á grunnstoðum flokkanna hækkað svo um munar en á móti hafa framlög lækkað.
Með endurskoðun laganna gefist tækifæri til að jafna aðstöðu flokkanna að þessu leyti, óháð stærð þeirra, sem felur sér í lagi í sér aukinn stuðning við smærri flokka.
„Gert er ráð fyrir að í nefndinni eigi sæti fulltrúar allra stjórnmálasamtaka, sem sæti eiga á Alþingi, auk fulltrúa forsætisráðuneytisins sem stýrir nefndinni, fulltrúa dómsmálaráðuneytisins, en lög um fjármál stjórnarmálasamtaka heyra samkvæmt forsetaúrskurði undir það ráðuneyti, og fulltrúi Ríkisendurskoðunar,“ segir í tilkynningunni.