Foreldrar langveikra eða alvarlega fatlaðra barna munu fá greidda desemberuppbót í ár. Greiðslan verður að hámarki 53.123 krónur, en um nýmæli er að ræða. Uppbótin verður sambærileg þeirri sem lífeyrisþegar og atvinnuleitendur fá greidda í jólamánuðinum. Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð þess efnis.
Tryggingastofnun ríkisins annast greiðslu desemberuppbótar samkvæmt reglugerðinni og verður hún greidd út eigi síðar en 18. janúar næstkomandi.
Á vef félags- og jafnréttisráðuneytisins segir að samkvæmt reglugerðinni á foreldri langveiks eða alvarlega fatlaðs barns sem hlotið hefur greiðslur í desember 2017 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra og alvarlegra fatlaðra barna rétt á desemberuppbót.
Uppbótin er hlutfallsleg þannig að foreldri sem fengið hefur mánaðarlega greiðslu samkvæmt lögunum alla tólf mánuði ársins fær fulla desemberuppbót, sem er að hámarki 53.123 krónur. „Foreldri sem hefur fengið greiðslur skemur en tólf mánuði á árinu 2017 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót í samræmi við þann tíma sem foreldrið hefur fengið greiðslur á árinu samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna,“ segir í fréttinni.