Miðflokkurinn og Flokkur fólksins brutu fjarskiptalög þegar þeir sendu fjölda farsímanotenda smáskilaboð í aðdraganda kosninga til Alþingis sem fram fóru í lok október. Þetta er niðurstaða Póst- og fjarskiptastofnunar, sem birti í dag tvær ákvarðanir þess efnis.
Í frétt á vef stofnunarinnar segir að henni hafi borist tugir kvartana í kringum kosningarnar sem fram fóru í haust vegna SMS skilaboða sem send voru í nafni flokkana og innihéldu hvatningu til þess að kjósa viðkomandi flokk. Í ljós kom síðar að báðir flokkarnir höfðu fengið fyrirtækið 1819 – Nýr valkostur ehf. til þess að senda skilaboð til tuga þúsunda farsímanotenda.
Miðflokkurinn fékk 1819 til að senda SMS til alls 57.682 einstaklinga í eitt skipti fyrir sig í aðdraganda kosninganna. Póst- og fjarskiptastofnun taldi augljóst miðað við efni skilaboðanna að tilgangur þeirra hafi verið að hvetja viðtakendur til þess að kjósa Miðflokkinn.
Í tilfelli Flokks fólksins voru send skilaboð til 80.763 viðtakenda og telur stofnunin augljóst að tilgangurinn hafi verið að hvetja viðtakendur til þess að kjósa Flokk fólksins.
Báðir flokkar náðu góðum árangri í kosningunum. Miðflokkurinn fékk 10,9 prósent atkvæða og sjö þingmenn kjörna. Flokkur fólksins fékk 6,9 prósent atkvæða og fjóra þingmenn kjörna.
Meðal þess sem fram kemur í ákvörðunum PFS sem birtar voru í dag er „að skilaboð sem þessi, frá stjórnmálaflokkum, teljast markaðssetning í skilningi 1. mgr. 46. gr. laga um fjarskipti. Þar er kveðið á um að „notkun sjálfvirkra uppkallskerfa, símbréfa eða tölvupósts, þ.m.t. hvers konar rafrænna skilaboða (SMS og MMS), fyrir beina markaðssetningu er einungis heimil þegar áskrifandi hefur veitt samþykki sitt fyrir fram. “
Eins og fram kemur í ákvæðinu þarf að afla sérstaks samþykkis frá hverjum viðtakanda fyrir sig áður en honum eru send rafræn skilaboð sem innihalda beina markaðssetningu. Það telst ekki samþykki fyrir móttöku slíkra skilaboða að hafa símanúmer sitt skráð í símaskrá án bannmerkingar.“
Þá kemur fram í ákvörðunum stofnunarinnar að það sé sá aðili sem verið er að markaðssetja fyrir sem ber ábyrgð á að framkvæmd sé í samræmi við lög. Það að láta þjónustufyrirtæki annast útsendingar skilaboða fyrir sig firrir slíkan aðila ekki ábyrgð.