Ríkið fær heimild til að láta borgina hafa ríkislóðir

Viljayfirlýsing var undirrituð af ríki og borg í fyrrasumar um að borgin myndi fá að kaupa ríkislóðir innan marka sinna til að hægt væri að byggja um tvö þúsund íbúðir á þeim. Í fjáraukalögum fær ríkið heimild til að ganga frá samningi þess efnis.

Það mun koma í hlut Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, að ganga frá samkomulagi við Reykjavíkurborg um ríkislóðirnar ef af því verður. Fyrirrennari hans í starfi, Benedikt Jóhannesson, undirritaði viljayfirlýsingu um málið.
Það mun koma í hlut Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, að ganga frá samkomulagi við Reykjavíkurborg um ríkislóðirnar ef af því verður. Fyrirrennari hans í starfi, Benedikt Jóhannesson, undirritaði viljayfirlýsingu um málið.
Auglýsing

Íslenska ríkið fékk heim­ild til þess í nýsam­þykktum fjár­auka­lögum að ganga til samn­inga við Reykja­vík­ur­borg um að láta borg­ina fá rík­i­s­lóðir innan marka hennar sem til stendur að byggja í um tvö þús­und íbúðir á næstu fimm árin. Á meðal þeirra lóða sem um ræðir eru Keldna­holt, Land­helg­is­­gæslu­reit­ur­inn, Veð­­ur­­stofu­reit­ur­inn og landið í kringum gamla SS-­­húsið í Laug­­ar­­dal.

­Samn­ing­ur­inn verður gerður á grund­velli vilja­yf­ir­lýs­ingar sem þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bene­dikt Jóhann­es­son, und­ir­rit­aði ásamt Degi B. Egg­erts­syni, borg­ar­stjóra í Reykja­vík, 2. júní 2017. Sú yfir­lýs­ing sner­ist um að vinna sam­eig­in­lega að þróun og skipu­lagn­ingu á lóðum og löndum í Reykja­vík sem eru í eigu eða umráðum rík­is­ins.

Síð­asta rík­is­stjórn, sem sat frá jan­úar 2017 og sprakk 15. sept­em­ber sama ár, sam­þykkti í febr­úar á síð­asta ári að setja á fót sér­stakan aðgerð­ar­hóp fjög­urra ráð­herra til að taka saman yfir­lit yfir þær aðgerðir sem rík­is­stjórnin getur ráð­ist í til þess að ýta frekar undir bygg­ingu lít­illa og hag­kvæmra íbúða. Aðgerð­ar­hóp­ur­inn átti einnig skil­greina hvernig hægt verði að ná utan um þann fram­boðs­skort á íbúðum sem er á íslenskum hús­næð­is­mark­aði.

Auglýsing
Í maí 2017 greindi Bene­dikt frá því að aðgerð­ar­hóp­ur­inn ynni að fjórtán mis­mun­andi aðgerðum til að bregð­ast við neyð­­ar­á­standi á íslenskum hús­næð­is­­mark­aði. Ein þeirra aðgerða snýst um að ríkið selji sveit­­ar­­fé­lögum lóðir til íbúða­­upp­­­bygg­ing­­ar.

2. júní í fyrra hélt hóp­ur­inn svo blaða­manna­fund þar sem fram kom að hann mæti að með sér­­tækum aðgerðum myndi jafn­­vægi nást á hús­næð­is­­mark­aði á árunum 2019 til­ 2020. Mark­mið aðgerð­­ar­hóps­ins var að byggja um 2.000 íbúðir á næstu árum á rík­­is­lóð­u­m.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent