Sex sóttu um embætti landlæknis sem auglýst var laust til umsóknar á liðnu ári. Umsóknarfrestur rann út 4. janúar síðastliðinn.
Þetta kemur fram í frétt velferðarráðuneytisins í dag.
Umsækjendur eru Alma D. Möller, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landspítala, Arna Guðmundsdóttir, læknir og formaður Læknafélags Reykjavíkur, Bogi Jónsson, yfirlæknir við bæklunardeild Háskólasjúkrahússins í Norður Noregi, Jón Ívar Einarsson, prófessor við læknadeild Harvardháskólans í Boston, Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins og Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri lækninga Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Heilbrigðisráðherra skipar í embætti landlæknis til fimm ára í senn að undangengnu mati sérstakrar nefndar sem starfar á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu um mat hæfni umsækjenda.
Skipað verður í embættið frá 1. apríl 2018 þegar Birgir Jakobsson lætur af störfum vegna aldurs, líkt og kveðið er á um í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Birgir Jakobsson var skipaður landlæknir frá 1. janúar 2015. Hann tók við embættinu af Geir Gunnlaugssyni sem var landlæknir í fimm ár þar á undan.
Birgir hafði um langt skeið sinnt stjórnunarstörfum við ýmis sjúkrahús í Svíþjóð og í sjö ár var hann forstjóri Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi. Sérgrein hans er barnalækningar og árið 1988 lauk hann doktorsprófi í sérgrein sinni við Karolinska Institutet.