Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, tilkynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun að hann hefði ákveðið að skipa nefnd til að endurskoða skipan dómara í Félagsdóm. Á meðal þess sem nefndin mun skoða er val á þeim sem sitja í dómnum og hvaða hæfniskröfur verði gerðar til þeirra. Er þetta gert meðal annars vegna athugasemda frá GRECO, samtökum ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu.
Í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Kjarnans um málið segir að í úttekt GRECO hafi komið fram að þótt núverandi forseti Félagsdóms væri héraðsdómari þá væru engar kröfur gerðar hvað það varðar í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. GRECO benti einnig á að engar sérstakar reglur gildi um skipan þessara dómara og að stöður þeirra séu ekki auglýstar.
„Í úttekt GRECO kemur fram að úrskurðir og dómar Félagsdóms eru endanlegir og verður ekki áfrýjað. Með vísan til þess er það álit GRECO að eðlilegt væri að gera þá lágmarkskröfu að dómendur tilnefndir af Hæstarétti færu í gegnum ráðningarferli sem tryggði sjálfstæði, óhlutdrægni og gagnsæi. Jafnframt bæri að auglýsa stöður þeirra líkt og þegar dómarar eru almennt skipaðir í stöður hér á landi.
Í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur er gerð krafa um að þeir dómarar sem Hæstiréttur skipar hafi lokið embættisprófi í lögfræði. Engar sérstakar hæfniskröfur eru gerðar í lögum til hinna dómaranna sem skipa félagsdóm, aðrar en að þeir séu íslenskir ríkisborgarar, fjár síns ráðandi og með óflekkað mannorð.
Lög um stéttarfélög og vinnudeilur eru frá árinu 1938 og hafa litlar breytingar orðið á kaflanum um Félagsdóm frá því að lögin tóku gildi. Fyrir liggur að strangari hæfniskröfur eru gerðar til dómenda í sérdómstólum um ágreining milli aðila vinnumarkaðarins hjá öðrum Norðurlandaþjóðum.
Í ljósi þessa og til að bregðast við athugasemdum GRECO hefur félags- og jafnréttisráðherra ákveðið að skipa nefnd með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins og velferðarráðuneytisins til að endurskoða gildandi fyrirkomulag og gera tillögu að breytingum á skipan dómara í Félagsdóm.“
Ísland hefur verið aðili að GRECO frá árinu 1999. Samtökin hafa eftirlit með því hvort og hvernig aðildarríkin fylgja tilmælum Evrópuráðsins um aðgerðir á þessu sviði og gera reglulega úttektir í því skyni.