Mælst hefur fjölgun jarðvegsgerla í kalda vatninu Í Reykjavík. Tvö sýni sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur tók 12. janúar stóðust ekki viðmið í reglugerð. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Veitum.
„Í varúðarskyni mælir Heilbrigðiseftirlitið með því að neysluvatn í vissum hverfum borgarinnar sé soðið ef um neytendur er að ræða sem eru viðkvæmir t.d. með lélegt ónæmiskerfi, ungabörn, aldraðir eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Þetta á við um öll hverfi borgarinnar nema Grafarvog, Norðlingaholt, Úlfarsárdal, Kjalarnes auk Mosfellsbæjar, sem fá vatn frá öðrum svæðum í Heiðmörk þar sem ekki hefur mælst gerlafjöldi yfir viðmiðunarmörkum,“ segir í tilkynningunni.
Í henni segir enn fremur að líkleg ástæða fyrir fráviki í gerlamagni sé mikil hlákutíð undanfarið í kjölfar langs frostakafla. „Við slíkar aðstæður getur yfirborðsvatn komist í grunnvatn og flutt með sér gerla. Ef gerlamagn í borholu mælist yfir mörkum er vatnstöku úr henni hætt. En nú er sú staða komin upp að búið er að taka það margar holur úr rekstri Veitna að ekki er hægt að anna vatnsþörf viðskiptavina ef þær verða fleiri,“ segir í tilkynningunni.
Því er talin þörf á því að nýta eina holu þar sem fjöldi jarðvegsgerla hefur mælst yfir mörkum. Í þeirri holu hafa ekki fundist E. coli gerlar.