Skattrannsóknarstjóri kyrrsetti og haldlagði eignir upp á 2,2 milljarða

Embætti skattrannsóknarstjóra vísaði 41 máli til héraðssaksóknara í fyrra. Ætluð undanskot voru frá milljónum króna og upp í sjöunda hundrað milljóna króna í einstökum málum.

Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri.
Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri.
Auglýsing

Á árinu 2017 voru kyrr­settar og hald­lagðar eignir undir rann­sókn hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins að fjár­hæð alls ríf­lega  2,2 millj­arðar króna í alls 15 mál­um. Í lang­flestum til­vikum er um að ræða kyrr­setn­ingar toll­stjóra til trygg­ingar vænt­an­legri skatt­kröfu, fésekt og sak­ar­kostn­aði. Þetta kemur fram í frétt á vef skatt­rann­sókn­ar­stjóra sem birt var í dag.

Þar segir að á síð­asta ári hafi 41 máli verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara til ákæru­með­ferðar í kjöl­far rann­sóknar skatt­rann­sókn­ar­stjóra,  og að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafi farið fram með sekt­ar­kröfu fyrir yfir­skatta­nefnd í alls 36 málum á árinu vegna ætl­aðra skatta­laga­brota. Í 22 málum var geng­ist undir sekt hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra.

„Ætluð und­an­skot eru af marg­vís­legum toga og mál mis­jöfn að umfangi. Ætl­aður und­an­skot­inn skatt­stofn er allt frá millj­ónum króna upp í á sjö­unda hund­rað millj­óna kr. í ein­stökum mál­u­m,“ segir í frétt­inni.

Auglýsing
Í kjöl­far til­kynn­inga skatt­rann­sókn­ar­stjóra rík­is­ins um rann­sókn vegna ætl­aðra brota vegna van­skila á inn­heimtum virð­is­auka­skatti og stað­greiðslu opin­berra gjalda, svo­nefnt vörslu­fé, voru greiddar ríf­lega þrjú hund­ruð millj­ónir króna inn á van­gold­inn höf­uð­stól á árinu 2017 meðan á rann­sókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra stóð eða í eft­ir­far­andi refsi­með­ferð.

Alls 66 mál felld niður

Hér­aðs­sak­sókn­ari felldi niður alls 66 mál á síð­asta ári sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafði kært til hans. Ástæðan var sú að máls­­­með­­­­­ferð þeirra hjá ann­­­ars vegar skatt­yf­­­ir­völdum og hins vegar hér­­­aðs­sak­­­sókn­­­ara var ekki næg­i­­­lega sam­t­vinnuð í efni og tíma, aðal­­­­­lega vegna þess að þeim var slegið á frest vegna þess að beðið var nið­­­ur­­­stöðu máls sem var til með­­­­­ferðar hjá Mann­rétt­inda­­­dóm­stóli Evr­­­ópu.

Á meðal þeirra mála sem felld voru niður eru mál ein­stak­l­inga sem komu fyrir í Pana­ma­skjöl­unum svoköll­uðu. Og stór hluti mál­anna snýst um ein­stak­l­inga sem geymdu fjár­­muni utan Íslands til að kom­­ast hjá skatt­greiðsl­­um. Búist er við því að enn fleiri mál tengd ætl­­uðum skattsvikum verði felld niður á næst­unni, en alls voru 152 mál til með­­­ferðar hjá emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara. Alls er skatt­­stofn­inn í öllum þeim málum yfir 30 millj­­arðar króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent