Félagar í Vinstri hreyfingunni grænu framboði í Reykjavík (VGR) ákváðu fyrr í kvöld að halda forval fyrir kosningar til borgarstjórnar, sem fram fara 26. maí.
Kosið verður rafrænt í forvali þann 24. febrúar næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.
Auglýsing
Á félagsfundinum var ennfremur kosin kjörnefnd, sem gera mun tillögu að skipan framboðslista í kjölfar forvals.
Framboðslistinn verður lagður fram til samþykktar á félagsfundi VGR í mars.
Líf Magneudóttir er borgarfulltrúi VG í dag.