Eyþór á fyrirtæki úti á Granda og vill byggja í Örfirisey

Eyþór Arnalds frambjóðandi í oddvitakjöri Sjálfstæðisflokksins vill að borgin reisi íbúabyggð í Örfirisey. Hann á sjálfur fyrirtæki í rekstri svæðinu en telur hagsmunatengslin ekki þannig að honum sé ókleift að vera talsmaður uppbyggingar á svæðinu.

örfiriseyþór
Auglýsing

Eyþór Arn­alds fram­bjóð­andi í odd­vita­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill að borgin reisi íbúa­byggð í Örfiris­ey. Hann á sjálfur fyr­ir­tæki í rekstri svæð­inu en telur hags­muna­tengslin ekki þannig að honum sé ókleift að vera tals­maður upp­bygg­ingar á svæð­inu.



Í aðsendri grein frá Eyþóri í Frétta­blað­inu í gær kemur fram að hann telji þétt­ingu byggðar í Reykja­vík hafa mis­tek­ist. Þannig hafi borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­inn und­an­farin ár unnið að þétt­ingu byggðar í mið­borg­inni þar sem ætla mætti að hefði þar af leið­andi orðið umtals­verð íbúa­fjölg­un. Hins vegar hafi fólki fækkað þar um tvö pró­sent á einu ári og um níu pró­sent á fimm árum. Vísar hann þar í frétta­skýr­ingu Kjarn­ans frá því í apríl í fyrra þessu til stuðn­ings.



Í frétta­skýr­ingu Kjarn­ans kemur einnig fram að flestir grein­ing­ar­að­ilar séu reyndar sam­mála um að útleiga íbúða til ferða­manna hafi tals­verð ruðn­ings­á­hrif og það sé mest í mið­borg­inni enda séu þar flestar íbúðir í útleigu. Í grein­ingu Arion banka frá því í jan­úar í fyrra sagði að allt að 3.200 íbúðir eru her­bergi væru til leigu á Air­bnb eða annarri heimagist­ingu.

Auglýsing


Eyþór leggur til „nýja nálg­un“ í þétt­ingu byggð­ar, að leyfa eigi háhýsi í Örfirisey, sem margir þekkja ein­fald­lega sem Granda­hverf­ið, líkt og gert var í Skugga­hverfi. Eyþór segir mögu­legt að byggja 10-15 þús­und manna byggð í áföngum í Örfirisey og þannig létta á ójafn­vægi umferðar og vera val­kostur fyrir fólk sem vill búa á mið­svæði.



Fram­bjóð­and­inn á hins ein­hverra óbeinna hags­muna að gæta á svæð­inu. Hann á til að mynda meiri­hluta í Whales of Iceland sem rekur hvala­sýn­ingu á Grand­an­um. Dótt­ur­fé­lag Eyþórs Special Tours keypti sýn­ing­una í lok síð­asta árs, gerir einnig út á ferða­manna­sigl­ingar frá Gömlu höfn­inni í Reykja­vík auk þess að eiga kaffi­húsið Reykja­vík Röst Bistro við sömu höfn. Að sögn Eyþórs á hann þó hvorki húsið né lóð­ina sem sýn­ingin stendur á.



Í sam­tali við Kjarn­ann segir Eyþór að í grein sinni sé hann aðeins að vísa til svo­kall­aðs tanka­svæðis í Örfirisey, það er það svæði þar sem olíu­tank­arnir standa, en ekki alls Granda­svæð­is­ins. Tanka­svæðið er í eigu Faxa­flóa­hafna.



Áður hefur verið rætt um fram­tíð olíu­tankanna á þessu svæði, til að mynda var árið 2013 fram­kvæmd könnun fyrir Faxa­flóa­hafnir meðal fyr­ir­tækja við gömlu höfn­ina þar sem fram kom að meiri­hluti þeirra vildu tank­ana burt á þeim for­sendum að olíu­flutn­ingar þaðan væru hættu­leg­ir.



Eyþór vill ekki meina að hann sé með of mik­illa hags­muni í húfi til að verða van­hæfur tals­maður upp­bygg­ingar í Örfiris­ey. Hvala­sýn­ingin myndi ekk­ert græða á byggð á svæð­inu, en 95 pró­sent gesta hennar séu útlend­ing­ar.



Hann segir upp­bygg­ingu á svæð­inu hafa verið til umræðu fyrir um 12 árum síð­an. „Skugga­hverfið er dæmi um vel heppn­aða þétt­ingu á svæði sem áður var bara iðn­að­ar­svæði við sjó­inn. Þetta myndi auka fram­boðið fyrir ungt fólk, það vantar fleiri íbúðir í vest­ari hluta borg­ar­innar til að létta á umferð­inni austur síð­ari hluta dags,“ segir Eyþór.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent