Íbúum miðborgar fækkað um tæplega 800

Miðborgin er eina hverfið í borginni þar sem færra fólk býr nú en fyrir sex árum. Fjölmennasta hverfið er Breiðholt, og fleiri búa nú í Laugardal en Vesturbæ. Íbúum borgarinnar hefur fjölgað um tæplega fimm þúsund.

Íbúar í miðborginni eru tæplega 800 færri nú en þeir voru fyrir sex árum síðan.
Íbúar í miðborginni eru tæplega 800 færri nú en þeir voru fyrir sex árum síðan.
Auglýsing

Íbúum í mið­borg Reykja­víkur hefur fækkað á hverju ári frá árinu 2011, sam­kvæmt tölum frá Reykja­vík­ur­borg. Í lok árs 2011 voru íbúar mið­borg­ar­innar 8.611 tals­ins en í lok síð­asta árs voru þeir 7.842. Það er fækkun um 769 íbúa á sex árum. 

Mið­borgin er eina hverfi borg­ar­innar þar sem færri búa nú en í lok árs­ins 2011. 



Flestir grein­ing­ar­að­ilar eru sam­mála um að útleiga íbúða til ferða­manna, mest í gegnum Air­bnb, hafi tals­verð ruðn­ings­á­hrif og það sé mest í mið­borg­inni enda eru þar flestar íbúðir í útleigu. Í grein­ingu Arion banka frá því í jan­úar sagði að allt að 3.200 íbúðir eða her­bergi væru til leigu á Air­bnb eða annarri heimagist­ing­u. 

Í öllum öðrum hverfum borg­ar­innar eru fleiri íbúar nú en árið 2011, og íbúum í Reykja­vík hefur fjölgað um 4.432 á þessum tíma.

Auglýsing

Fækkað í Vest­urbæ síð­ustu ár

Í Vest­urbæ Reykja­víkur hefur íbúum fækkað lít­il­lega síð­ustu tvö ár, en íbúar eru engu að síður um 500 fleiri nú en þeir voru fyrir sex árum síð­an. Nú búa rétt rúm­lega sextán þús­und manns í vest­ur­bæn­um, sem er fjórða stærsta hverfi borg­ar­inn­ar. 

Lang­fjöl­menn­asta hverfi borg­ar­innar er Breið­holt, þar sem nú búa yfir 21.300 manns. Íbúum þar hefur fjölgað hægt og bít­andi und­an­farin ár, líkt og sjá má hér að neð­an. 



Næst­fjöl­menn­asta hverfið í Reykja­vík er Graf­ar­vog­ur, en íbúa­fjöldi þar hefur hald­ist mjög stöð­ugur und­an­farin ár. Í lok árs­ins 2011 bjuggu þar 17.869 ein­stak­lingar en í lok síð­asta árs voru þeir 17.944. Fjölg­unin nemur 75 manns.

Þriðja stærsta hverfið er nú Laug­ar­dal­ur, þar sem 16.135 íbúar búa, miðað við 15.357 fyrir sex árum síð­an. Þar hefur einnig fjölgað á hverju ein­asta ári frá 2011. Það ár var Laug­ar­dalur örlítið fámenn­ari en Vest­ur­bær­inn en hverfin hafa nú haft sæta­skipti og Vest­ur­bær­inn er orð­inn fjórða stærsta hverfi borg­ar­inn­ar. 

Íbúum í Graf­ar­holti og Úlf­ars­felli hefur fjölgað mest á þessum sex árum sem töl­fræðin nær yfir. Úlf­arsár­dalur er nýjasta hverfi borg­ar­innar svo fjölg­unin kemur ekki á óvart. 928 fleiri bjuggu í Graf­ar­holti og Úlf­arsár­dal í lok síð­asta árs en árið 2011. Íbúum í Árbæ hefur fjölgað um 854 á sama tíma­bili og í Breið­holti búa nú 839 fleiri en gerðu fyrir sex árum. 

Hér að neðan má sjá íbúa­fjölda í hverfum borg­ar­inn­ar, en taflan er fengin af töl­fræði­vef Reykja­vík­ur­borg­ar.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórunn Elísabet Bogadóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None