280 þúsund manns dáið úr of stórum skammti á 5 árum

Gífurleg aukning hefur verið á dauðsföllum úr of stórum skammti vímuefna. Tölur um dauðsföll á Íslandi hjá ungum fíklum þykja „ógnvekjandi“.

fíkn3221117
Auglýsing

Ógn­vekj­andi far­aldur er nú í Banda­ríkj­un­um, þar sem þeim fjölgar sífellt sem deyja úr of stórum skammti vímu­efna.

Í fyrra lét­ust um 71 þús­und ein­stak­lingar í Banda­ríkj­unum úr of stórum skammti vímu­efna, en það er fjölgun um sjö þús­und manns frá árinu 2016, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heil­brigð­is­stofn­unar Banda­ríkj­anna (NI­H).

Far­aldur

Segja má að algjör far­aldur sé nú ríkj­andi í Banda­ríkj­unum vegna þeirrar gíf­ur­legu fjölg­unar dauðs­falla sem rekja má til vímu­efna, og aukn­ingin er ekki síst vegna mik­illar fjölg­unar ein­stak­linga sem neyta sterkra ópíóíða (mor­fín og oxycontine).

Auglýsing

Á ein­ungis fimm árum, 2013, 2014, 2015, 2016 og 2017, hafa dáið 280 þús­und ein­stak­lingar í Banda­ríkj­unum úr of stórum skammti.

Dauðsföllum úr of stórum skammti fíkniefna hefur fjölgað gífurlega á síðustu árum í Bandaríkjunum.

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur þegar lýst því yfir að vand­inn sé með­höndl­aður sem neyð­ar­vandi, innan stofn­anna Banda­ríkja­stjórnar sem koma að málum með einum eða öðrum hætti. Borgir Banda­ríkj­anna hafa einnig gripið til meira sam­starf með heil­brigð­is­yf­ir­völd­um, meðal ann­ars til að koma meira til móts við sprautu­fíkla.

Ógn­vekj­andi aukn­ing á Íslandi

Aukn­ing á dauðs­föllum meðal ungra fíkla á Íslandi hefur einnig verið „ógn­vekj­andi“ að mati Þór­ar­ins Tyrf­ings­son­ar, yfir­lækn­is, en hann fjall­aði um stöðu mála á Lækna­dög­um.

Sam­tals lét­ust 32 áfeng­is- og vímu­efna­sjúk­lingar sem voru undir fer­tugu á árinu 2017, þar af voru 14 yngri en 30 ára. Á árinu 2016 voru sömu tölur 27 og 9. Þetta eru hræði­legar tölur og miklu hærri en við höfum séð áður. „Þetta má að miklu leyti rekja til aukn­ingar á fjölda ungra sjúk­linga sem eru að nota sterka ópíóíða í æð (contalgin og oxycodo­ne),“ segir á vef SÁÁ, þar sem vitnað er til erindis Þór­ar­ins. „Hvað dauðs­föllin varðar hafa þau verið miklu færri allt frá árinu 2000 meðal þeirra sem eru yngri  en 40 ára. Í ald­urs­hópnum undir 30 ára skera fjögur ár sig úr; árin 2000, 2001, 2014 og nú 2017 sem er versta árið með 14 dauðs­föll hjá þeim sem eru 29 ára og yngri. Fíkn í sterk­ari ópíóíða (morfin og oxycontine) byrjar að vaxa aftur árið 2013 og nær áður óþekktri stærð með 166 ein­stak­lingum árið 2016. Yfir 80% þess­ara sjúk­linga nota þessi vímu­efni í æð,“ segir á vef SÁÁ.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent