Lokatölur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi lágu fyrir í gærkvöldi, og leiðir Ásgerður Halldórsdóttir, sitjandi bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, listann, en hún hlaut örugga kosninga í efsta sætið, eða 463 atkvæði af 711.
Fimm konur eru í efstu sjö sætum listans.
Listinn er sem hér segir:
Auglýsing
1. Ásgerður Halldórsdóttir
2. Magnús Örn Guðmundsson
3. Sigrún Edda Jónsdóttir
4. Bjarni Torfi Álfþórsson
5. Ragnhildur Jónsdóttir
6. Sigríður Sigmarsdóttir
7. Guðrún Jónsdóttir
Greidd atkvæði voru 711 en þar af voru 26 seðlar auðir og ógildir. Talin atkvæði voru því 685.