Eiríkur stefnir íslenska ríkinu vegna lögbrots dómsmálaráðherra

Eiríkur Jónsson, einn þeirra fjögurra sem dómnefnd hafði talið hæfasta til að verða dómarar í Landsrétti en dómsmálaráðherra ákvað ekki að tilnefna, hefur ákveðið að stefna íslenska ríkinu.

Eiríkur Jónsson og Sigriður Andersen
Auglýsing

Eiríkur Jóns­­son laga­­pró­­fessor við Háskóla Íslands, hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu og krefj­ast bóta vegna ólög­­mætra athafna Sig­ríðar Á. And­er­sen dóms­­mála­ráð­herra þegar hún skip­aði dóm­­ara í Lands­rétt. Eiríkur var einn þeirra fjög­­urra sem dóm­­nefnd hafði talið á meðal 15 hæf­­ustu til að starfa í rétt­inum en Sig­ríður vék til hlið­­ar. Raunar hafði dóm­­nefndin metið Eirík sjö­unda hæf­asta umsækj­and­ann, en hann var samt lát­inn víkja af lista dóms­­mála­ráð­herra.

Ei­ríkur sendi kröfu á rík­is­lög­mann 28. des­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem hann krafð­ist bóta vegna máls­ins. Grímur Sig­urðs­son, lög­maður Eiríks, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um málið að íslenska ríkið hafi við­ur­kennt greiðslu miska­bóta en hafnað bóta­skyldu að öðru leyti. „Eiríkur hefur því ákveðið að stefna rík­inu. Stefnu­gerðin er á loka­metrum og verður stefnan birt fyrir rík­inu á næst­unni. Í stefn­unni er ekki sett fram fjár­krafa heldur krafa um við­ur­kenn­ingu á bóta­skyldu. Sú bóta­skyldan er að okkar mati ótví­ræð og nú þegar dæmd, með dómum Hæsta­réttar í málum Jóhann­esar Rún­ars Jóhanns­sonar og Ást­ráðs Har­alds­son­ar.“

Braut gegn ákvæðum stjórn­sýslu­laga

Sig­ríður Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra ákvað að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­nefndar um skipun 15 dóm­­­ara í Lands­rétt í lok maí 2017. Hún ákvað að til­nefna fjóra ein­stak­linga dóm­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­ustu. Alþingi sam­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

Auglýsing
Ást­ráður Har­alds­­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­­son, sem urðu báðir af dóm­­ara­­sæti í Lands­rétti vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­ar, stefndu rík­­inu vegna ákvörð­unar Sig­ríð­ar. Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­nefnd­ar­inn­ar. Í gær birti Stundin svo gögn sem sýna að sér­fræð­ingar stjórn­ar­ráðs­ins höfðu varað ráð­herr­ann við því að svona gæti far­ið.

Þeir eru báðir starf­andi lög­­­menn og lögðu ekki fram nein gögn sem gátu sýnt fram á fjár­­hagstjón vegna ákvörð­unar ráð­herra. Skorað var á þá fyrir dómi að leggja fram skatt­fram­­töl og þar með upp­­lýs­ingar um tekjur sínar þannig að unnt væri að taka afstöðu til þess hvort þeir hefðu beðið „fjár­­tjón vegna þeirra ákvarð­ana dóms­­mála­ráð­herra sem um ræðir í mál­in­u“. Hvor­ugur þeirra gerði slíkt og þess vegna var íslenska ríkið sýknað af við­­ur­­kenn­ing­­ar­­kröfu um fjár­­tjón. Íslenska rík­inu var hins vegar gert að greiða þeim miska­bæt­ur.

Gætu átt háar bóta­kröfur

Tveir aðrir menn sem voru á lista dóm­­nefndar yfir þá sem átti að skipa dóm­­ara höfð­uðu ekki mál. Annar þeirra, Jón Hösk­­ulds­­son hér­­aðs­­dóm­­ari, sendi hins vegar kröfu á íslenska ríkið eftir að dómur Hæsta­réttar lá fyrir þar sem hann krafði það um skaða- og miska­bætur vegna skip­unar í Lands­rétt. Þeirri kröfu var ekki svarað og Jón hefur nú höfðað mál.

Jón krefst þess að fá bætt mis­­mun launa, líf­eyr­is­rétt­inda og ann­­arra launa­tengdra rétt­inda dóm­­ara við Lands­rétt ann­­ars vegar og hér­­aðs­­dóm­­ara hins veg­­ar. Jón krefst þess að fá þennan mun greiddan út starfsævi sína, eða í níu ár. Lands­rétt­­ar­­dóm­­arar fá 1,7 millj­­ónir króna í laun á mán­uði en hér­­aðs­­dóm­­arar 1,3 millj­­ónir króna.

Nú hefur Eiríkur einnig ákveðið að stefna íslenska rík­inu. Hann er, líkt og áður sagði, pró­­­fessor við laga­­­deild Háskóla Íslands. Hann er fæddur árið 1977 og er því fer­tugur að aldri. Eiríkur á því um 27 ár eftir á vinn­u­­­mark­aði miðað við hefð­bund­inn eft­ir­­­launa­ald­­­ur. Sam­­­kvæmt upp­­­lýs­ingum á heima­­­síðu félags pró­­­fess­ora ætti Eiríkur að vera með á bil­inu 659.683 til 727.572 krónur í mán­að­­­ar­­­laun.

Það er um einni milljón króna frá þeim mán­að­­­ar­­­launum sem hann hefði haft sem dóm­­­ari við Lands­rétt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent