Katrín svarar fyrir gjörðir Sigríðar Andersen

Stjórnarandstaðan fjölmennti í pontu á Alþingi til að spyrja forsætisráðherra út í stöðu Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra eftir dóm Hæstaréttar þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að hún hafi brotið stjórnsýslulög.

Katrín Jakobsdóttir, Sigríður Á. Andersen og Helga Vala Helgadóttir.
Katrín Jakobsdóttir, Sigríður Á. Andersen og Helga Vala Helgadóttir.
Auglýsing

Stjórn­ar­and­staðan spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra ítrekað út í stöðu Sig­ríðar Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra á fyrsta fundi Alþingis sem hald­inn var í dag. Eini dag­skrár­liður fund­ar­ins var um stöð­una í stjórn­málum og verk­efnin framund­an.

Í and­svari við ræðu Katrín­ar, sem opn­aði fund­inn þegar hún fór yfir stöð­una á breiðum grund­velli, spurði Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hvað for­sæt­is­ráð­herra ætl­aði að gera til að koma í veg fyrir algjört van­traust á rík­is­stjórn sína vegna afstöðu sinnar til lög­brots dóms­mála­ráð­herra.

Katrín vís­aði í starfs­hóp­inn sem hún hefur skipað um efl­ingu trausts á stjórn­málum og stjórn­sýslu sem ætlað er að fara yfir siða­reglur fram­kvæmda­valds­ins, rík­is­stjórnar og stjórn­sýsl­unn­ar, setja þeim siða­reglur og reglur um hags­muna­skrán­ingu og að full ástæða sé til að fara yfir þessar reglur og hvernig fram­kvæmd þeirra hefur hingað til verið hátt­að.

Auglýsing

Helga Vala svar­aði því til að það væri gott að skipa starfs­hópa en vand­inn blasi þó við. For­sæt­is­ráð­herra verði að stíga inn í og segja að hér hafi orðið algjört trún­að­ar­rof, farið hafi verið yfir trún­að­ar­mörk og skortur sé á trausti. Bregð­ast verið við þeim vanda sem blasi við í íslensku dóms­kerfi, í íslensku rétt­ar­kerfi og nefnd sið­fræð­inga og ann­arra mætra ein­stak­linga verði að sýna almenn­ingi að lög beri að virða.

Jón Þór Ólafs­son þing­maður Pírata tók í sama streng og Helga Vala. Hann spurði ráð­herra hvort hún ætl­aði á ein­hverjum tíma­punkti, nú þegar ný gögn hafi komið fram, end­ur­skoða afstöðu sína um hvort dóms­mála­ráð­herra geti setið áfram í emb­ætti.

Gunnar Bragi Sveins­son þing­maður Mið­flokks­ins bætti um betur og spurði hvort ráð­herrar væru hafnir yfir lög, hvort þeir þurfi ekki að fara að lögum lands­ins. Ef að dómur falli á ráð­herra hvort hann eigi ekki að axla ábyrgð með ein­hverjum hætti og ef ekki þá af hverju ekki. Eigi hann að axla ábyrgð hvernig sú ábyrgð sé.

Katrín sagð­ist hafa svarað þessum spurn­ingum áður. Ráð­herrar hafi áður fengið á sig dóma, til dæmis fyrir brot á jafn­rétt­islög­um, skipu­lags­lögum og svo mætti áfram telja. Stjórn­völdum beri að fara yfir ferlið, það lagaum­hverfi sem skapað hafi verið og þær reglur sem hugs­an­lega þurfi að setja. „Ég tel ekki endi­lega að dómur fyrir brot á lögum leiði til afsagnar ráð­herra,“ sagði Katrín að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent