Segir síðustu ríkisstjórn hafa sprungið með „gargi og atgangi út af litlu“

Páll Magnússon telur „garg“ um afsagnir helstu ástæðu þess að almenningur beri vantraust til stjórnmála. Hann segir síðustu ríkisstjórn ekki hafa sprungið út af barnaníði og finnst „út í hött“ að Sigríður Á. Andersen eigi að segja af sér.

7DM_5602_raw_170912.jpg Alþingi 12. september 2017. Páll Magnússon
Auglýsing

„Sá flokkur sem olli síð­ustu stjórn­ar­slitum með gargi og atgangi út af litlu, kjós­endur ákváðu að henda honum út af þingi. Ég held að menn séu búnir að fá nóg af þessu gargi. Og þó að mönnum verði á í stjórn­sýslu sam­kvæmt ein­hverri nið­ur­stöðu Hæsta­rétt­ar, að það sé til­efni til afsagnar og menn standi hér alltaf á götu­hornum og heimti afsögn, þing­rof, nýjar kosn­ing­ar, út af engu, eða svo gott sem eng­u[...]þetta er örugg­lega sú ástæða sem stök er mesta skýr­ingin á þessu van­trausti sem almenn­ingur ber til stjórn­mál­anna.“ 

Þetta sagði Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morg­un.

Þar ræddu Páll og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Við­reisn­ar, meðal ann­ars kröfur um afsögn Sig­ríðar Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra vegna Lands­rétt­ar­máls­ins, stjórn­ar­slitin síð­ast­liðið haust og traust í stjórn­mál­um.

Þor­gerður var ósam­mála Páli um að síð­asta rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar hafi sprungið út af litlu. Upp­reist æru-­málið og leynd­ar­hyggjan í kringum það, þar sem upp­lýs­ingum um aðkomu föður Bjarna Bene­dikts­sonar að upp­reist æru dæmd barn­a­níð­ings var haldið frá sam­starfs­mönnum í rík­is­stjórn, þing­mönn­um, fjöl­miðlum og almenn­ingi, væri ekki lítið mál.

Auglýsing
Páll brást við með því að segja: Þegar ég segi að stjórnin hafi sprungið út af litlu, þá skulum við hafa það í huga að sú stjórn sprakk ekki út af barn­a­níði. Hún sprakk heldur ekki út af upp­reist æru. Opin­ber skýr­ing Bjartrar fram­tíðar á því að sú stjórn sprakk er að þeir töldu sig hafa átt að fá að vita eitt­hvað í júlí sem þeir fengu að vita í sept­em­ber. Það var nú öll leynd­ar­hyggjan og það var nú allt trún­að­ar­rof­ið.“

„Út í hött“ að ráð­herra segi af sér

Páll var líka spurður út í þá stöðu sem Sig­ríður Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra er í, en Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu í des­em­ber að hún hefði brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að skipa fjóra dóm­ara í Lands­rétt sem dóm­nefnd hafði ekki talið hæf­asta til þess. Ný gögn sem birt voru í Stund­inni í gær sýndu að sér­fræð­ingar stjórn­ar­ráðs­ins höfðu varað ráð­herr­ann ítrekað við því að hún væri mögu­lega ekki að upp­fylla rann­sókn­ar­skyldu stjórn­sýslu­laga með athæfi sínu.

Páll sagði að fyrir sína parta væri allt í lagi með stöðu Sig­ríð­ar. Kröfur um afsögn hennar væru dæmi um ýkt, yfir­drifin og stór­karla­leg við­brögð við of litlu til­efni. „Ég held að það sé búið að þvarga þessu máli út í tals­verða vit­leysu[...]að tala um afsögn ráð­herra af þessum ástæðum finnst mér algjör­lega út í hött. Mér finnst að menn ættu að minnka gargið og þvargið í kringum þetta og horfa á  hvert er efni máls­ins. Það er ekk­ert til­efni til ráð­herra­af­sagnar í þessu máli.[...]Ég lít ekki svo á að þetta [mál] sé sér­stakur kist­ill á baki ráð­herra.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent