Trump vill 25 milljarða Bandaríkjadala til að byggja landamæramúr

Donald Trump hefur lagt fram kröfu um að Bandaríkjaþing samþykki að setja 25 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði um 2.500 milljarða króna, til að byggja múr á landamærum við Mexíkó.

Donald J. Trump.
Donald J. Trump.
Auglýsing

Don­ald Trump Banda­­ríkja­­for­­seti vill að Banda­­ríkja­þing stofni 25 millj­­arða dala sjóð, jafn­virði 2.500 millj­arða króna, vegna bygg­ing­ar múrs á landa­mærum Banda­ríkj­anna, meðal ann­ars gagn­vart Mexíkó. Í stað­inn seg­ist Trump til­bú­inn til að láta 1,8 millj­­ón­ir ungra inn­­flytj­enda fá banda­rísk­an rík­­is­­borg­­ara­rétt á næstu 10 til 12 árum.

Inn­­flytj­end­­urn­ir sem um ræðir eru svo­kölluð drauma­­börn (e. drea­­mer­s), en í fyrstu stóð til að vísa þeim úr landi. Demókratar mót­mæltu þeim hug­mynd­um, og hluti Repúblik­ana sömu­leið­is. Þetta leiddi til samn­inga­við­ræðna, sem enn standa yfir, en Trump von­ast til þess að leysa úr mál­inu með þessum „skipt­u­m“.

Trump marglýsti því yfir í kosn­inga­bar­áttu sinni, að Mexíkó myndi borga fyrir múr­inn, ekki Banda­rík­in. 

Auglýsing

Óhætt er að segja að Trump standi í miklum stór­ræðum þessa dag­ana, og hafa fjöl­miðlar í Banda­ríkj­unum sagt að mik­ill titr­ingur sé nú í starfs­liði for­set­ans vegna rann­sóknar sak­sókn­ar­ans Roberts Mueller á tengslum Rússa við fram­boðs Trumps og kosn­inga­bar­átt­una árið 2016.



New York Times greinir frá því í dag, að Trump hafi viljað láta reka Mueller í júní í fyrra, en lög­maður í Hvíta hús­inu, Don­ald McGa­hn, hafi lagst gegn því og sagt að afleið­ing­arnar gætu orðið alvar­legar fyrir for­seta­emb­ættið og for­set­ann sjálf­an. 

Sjálfur hefur Trump sagt, að hann vilji ræða við Mueller sem fyrst, og kallar rann­sókn hans mestu norna­veiðar í sögu stjórn­mál­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent