Verðbólgudraugurinn vaknaður?

Verðbólga mældist mun meiri á ársgrundvelli en flestar spár gerðu ráð fyrir.

peningar
Auglýsing

Verð­bólga á árs­grund­velli er nú komin upp í 2,4 pró­sent, en verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands er 2,5 pró­sent.

Sam­kvæmt tölum sem Hag­stofa Íslands birti í dag, þá lækk­aði vísi­tala neyslu­verðs um 0,09 pró­sent milli mán­aða í jan­ú­ar. Flestar spár höfðu gert ráð fyrir lækkun á bil­inu 0,4 til 0,5 pró­sent, og því hækkar árs­verð­bólgan mun meira en grein­endur höfðu gert ráð fyr­ir.

Í grein­ingu Arion banka á þessum breyt­ing­um, kemur fram að miklu muni um óvænta hækkun á reikn­aðri og greiddri húsa­leigu, en hún var hærri en gert var ráð fyrir í flestum spám. „Óvænta efni mæl­ingar Hag­stof­unnar að þessu sinni er reiknuð og greidd húsa­leiga sem var hærri en gert var ráð fyr­ir. Það skýrist að miklu leyti af gríð­ar­mik­illi mældri hækkun hús­næð­is­verðs á lands­byggð­inni sem setur lið­inn reikn­aða húsa­leigu úr skorð­um. Að öðru leyti er þróun und­ir­liggj­andi þátta ekki óvænt þó verð­bólgu­þrýst­ingur sé að sönnu meiri en við vænt­u­m,“ segir í grein­ingu Arion banka.

Auglýsing

Spáin gerir ráð fyrir að verðbólgan aukist jafnt og þétt, næstu misseri. Mynd: Arion banki.

Í mæl­ingu Hag­stof­unnar hækk­aði íbúð­ar­hús­næði á lands­byggð­inni um 5,4 pró­sent milli mán­aða í jan­ú­ar. Í grein­ingu Arion banka segir að oft hafi reynst erfitt að spá fyrir þróun á þessum lið vísi­töl­unn­ar. „Verð­bólgu­spá­mönnum hefur í gegnum tíð­ina reynst afar erfitt að fylgja því flökti á eft­ir. Þó svo und­ir­vísi­talan mark­aðs­verð íbúð­ar­hús­næði á lands­byggð­inni sé alla jafna ekki ráð­andi í breyt­ingu vísi­töl­unnar þá hefur sveifla af þess­ari stærð tals­verð áhrif. Þróun hús­næð­is­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sam­kvæmt mæl­ingu Hag­stof­unnar var af öðrum toga milli mán­aða. Fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 0,6% og sér­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækk­aði um 2%. Það er sömu­leiðis sveifla sem er full­kom­lega úr takti við það sem sést hefur und­an­farna mán­uð­i.Heilt yfir hækk­aði verð íbúð­ar­hús­næðis á land­inu öllu um 0,8% milli mán­aða í jan­úar sam­kvæmt mæl­ingu Hag­stof­unn­ar. Þrátt fyrir 16% hækkun á íbúða­verði á lands­byggð­inni und­an­farna 12 mán­uði, þá lækk­aði und­ir­vísi­talan fjórum sinnum á því tíma­bili en verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækk­uðu aldrei á milli mán­aða. Því kæmi ekki á óvart að íbúða­verð á lands­byggð­inni myndi lita ein­hverja mæl­ingu árs­ins til lækk­un­ar,“ segir í grein­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent