Ekki búið að taka ákvörðun hvort lögbannsdómi verði áfrýjað

Lögbann á umfjöllun Stundarinnar er í gildi þar til að ákvörðun hefur verið tekin um hvort dómi héraðsdóms verði áfrýjað eða ekki. Verði dómnum áfrýjað mun lögbannið gilda að minnsta kosti fram að niðurstöðu æðri dómstóls.

Jón Trausti Reynisson og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ritstjórar Stundarinnar eftir dómsuppkvaðninguna í héraðsdómi í dag.
Jón Trausti Reynisson og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ritstjórar Stundarinnar eftir dómsuppkvaðninguna í héraðsdómi í dag.
Auglýsing

Ekki liggur fyrir hvort dómi hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur, þar sem hann hafn­aði því að stað­­festa lög­­­bann sem sýslu­­mað­­ur­inn á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu setti á frétta­­flutn­ing Stund­­ar­innar upp úr gögnum innan úr þrota­­bús Glitn­is, verði áfrýjað eða ekki. Þetta segir Ólafur Eiríks­son, lög­maður Glitn­is, í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Ólafur segir að stjórn Glitnis muni kynna sér dóm hér­aðs­dóms og taka ákvörðun um næstu skref eftir að hafa greint hann. Lög­bannið sem sett var á Stund­ina og Reykja­vík Media verður í gildi á meðan að frestur til áfrýj­unar stendur yfir. Ákveði Glitnir að áfrýja nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms mun lög­bannið gilda þar til að nið­ur­staða æðri dóm­stóls, lík­lega Hæsta­rétt­ar, liggur fyr­ir.

Sýslu­­mað­­ur­inn í Reykja­vík féllst þann 16. októ­ber síð­­ast­lið­inn á lög­­­banns­­kröfu þrota­­bús­ins, Glitnis HoldCo gegn frétta­­flutn­ingi Stund­­ar­innar og Reykja­vik Media, sem er í eigu Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­­son­­ar, með þeim afleið­ingum að bann var sett á frétta­­flutn­ing­inn upp úr gögn­un­um, en meðal þess sem finna má í gögn­unum eru upp­­lýs­ingar um einka­­mál­efni veru­­legar fjölda fyrr­ver­andi við­­skipta­vina Glitn­­is. Á meðal þess sem fjallað hefur verið um ítar­­lega eru fjár­­­mál Bjarna Bene­dikts­­son­­ar, fjár­­­mála­ráð­herra og for­­manns Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins. Glitnir HoldCo taldi að upp­­lýs­ing­­arnar væru bundnar banka­­leynd.

Auglýsing
Héraðsdómur hafn­aði því í morgun að stað­festa lög­bannið og sagði í for­sendum sínum að Stundin hafi með umfjöllun sinni um mál­efni þáver­andi for­­sæt­is­ráð­herra Bjarna Bene­dikts­­sonar og ann­­arra ekki gengið nær einka­­lífi þeirra sem um ræddi en óhjá­­kvæmi­­legt hafi verið í opin­berri umræðu í lýð­ræð­is­­sam­­fé­lagi um mál­efni sem varðar almenn­ing og að nægar ástæður hafi þar af leið­andi verið fyrir hendi sem rétt­lættu birt­ingu þess­­ara skrifa. Engu breyti þar um hvernig gögnin komust í hendur þeirra né heldur að í þeim séu upp­­lýs­ingar sem und­ir­orpnar séu banka­­leynd.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent