Stjórn stéttarfélagsins VR skoðar hvort rétt sé að láta reyna á að félagið gangi úr Alþýðusambandi Íslands (ASÍ) án þess að bera það undir félagsmenn VR í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag, og segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, frá þessu í samtali við blaðið.
Hann segist búast við því að látið yrði reyna á málið fyrir félagsdómi. Ragnar segir að VR sé aðili að ASÍ í gegnum aðild að Landssambandi verslunarmanna. „Það eina sem við þurfum að gera er að segja okkur úr Landssambandinu og þá segjum við okkur sjálfkrafa úr ASÍ. Stjórnin getur ákveðið þá úrsögn.“
Hann segir þó að lög ASÍ geri ráð fyrir að aðildarfélög þurfi að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu til að segja sig úr sambandinu. „Þarna er ágreiningsmál og við erum að hugsa um að láta reyna á það fyrir félagsdómi,“ segir Ragnar.
Málið verði skoðað á trúnaðarráðsfundi sem verði líklega í mars eða apríl. Ragnar segir að VR greiði Landssambandi verslunarmanna og ASÍ um 150 milljónir á ári. „Ég sé enga ástæðu til að vera að borga nánast helminginn af rekstrarfé Alþýðusambandsins og halda því uppi þegar mér finnst það vera að vinna á móti hagsmunum launafólks. Þá spyrjum við okkur hvað getum við fengið fyrir þessar 150 milljónir. Getum við ráðið inn auka lögfræðinga og farið í meiri neytendavernd og eflt okkar þjónustu og okkar sjóði?,“ segir Ragnar Þór í samtali við Fréttablaðið.
Í VR eru 33 þúsund félagsmenn, en Ragnar Þór vann yfirburðasigur í formannskosningu í fyrra, með tæplega 63 prósent atkvæða.