Nýr aðstoðarmaður dómsmálaráðherra glímir við ólæknandi krabbamein

Einar Hannesson nýr aðstoðamaður Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra glímir við fjórða stigs krabbameina í lungum og lifur. Hefur haldið óskertri starfsorku og segist ekki hafa getað skorast undan þegar kallið kom.

Auglýsing
Einar Hannesson

Einar Hann­es­son nýráð­inn aðstoð­ar­maður Sig­ríðar Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra mun ekki aðeins þurfa að takast á við nýtt krefj­andi starf heldur berst hann einnig við ólækn­andi krabba­mein.

Árið 2013 var hann greindur með ristil­krabba­mein, fór í upp­skurð snemma árs 2014 en þá um sum­arið kom í ljós að krabba­meinið hafði dreift sér bæði lungu og lif­ur.

Í sam­tali við Kjarn­ann segir Einar að um sé að ræða fjórða stigs krabba­mein sem hann sé ennþá með.

Auglýsing

„Það var búið að dreifa sér í lungu og lifur og 95 pró­sent þeirra sem grein­ast með þetta krabba­mein deyja innan fimm ára. Svo virð­ist vera sem það sé eitt­hvað seig­ara í mér en á horfð­ist. En svona mein eru svo ein­stak­lings­bundin að ég treysti mér ekk­ert til að segja mikið meira.“

Einar seg­ist bless­un­ar­lega hafa haldið óskertri starfs­orku frá því hann greind­ist, fylgst sé náið með fram­gangi sjúk­dóms­ins á Land­spít­al­anum og vel hafi gengið að halda honum niðri fram að þessu.

„Ég er svo hepp­inn að ég hef verið ein­kenna­laus og náð að sinna hinum ýmsu störf­um,“ segir Einar sem hefur meðal ann­ars verið ráð­gjafi hjá WOW air, sinnt fast­eigna­sölu og lög­manns­störf­um.

Í við­tali við Stund­ina árið 2015 sagð­ist Einar vinna allt of mikið miðað við að líkur séu á að hann eigi ekk­ert voða­lega langt eftir ólif­að. Aðspurður um hvort álag við störf aðstoð­ar­manns­ins komi ekki til með að hafa áhrif á heils­una svarar hann léttur í bragði: „ef blaða­menn verða góðir við mig þá lifi ég sjálf­sagt leng­ur.“

Hann segir verk­efni dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins bæði áhuga­verð og mik­il­væg. „Þegar ráð­herra hringir í mann og óskar eftir að maður lið­sinni rík­is­stjórn­inni þá verður maður eig­in­lega að leggja sitt af mörk­um.

Einar er bjart­sýnn og segir fram­tíð­ina bara koma í ljós. „Það hefur ekk­ert dregið af mér og ég hef svo sem heldur ekk­ert verið neitt veik­ur. En ég fer heldur ekk­ert auð­veld­lega á taugum og það sjálf­sagt hjálpar eitt­hvað til.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent