Einar Hannesson aðstoðar Sigríði Andersen

Einar Hannesson lögmaður hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra. Aðstoð­ar­menn ráð­herra eru með Einari 21 tals­ins, að með töldum upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Auglýsing
Einar Hannesson

Einar Hann­es­son lög­maður hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­maður Sig­ríðar Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra. Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu mun Einar hefja störf á næstu vikum og starfa með Lauf­eyju Rún Ket­ils­dóttur sem hefur verið aðstoð­ar­maður ráð­herra und­an­farið eitt ár.

Alls eru ell­efu ráð­herrar í rík­­­­is­­­­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­­ur, for­­sæt­is­ráð­herra. Hver og einn þeirra má vera með tvo aðstoð­­­­ar­­­­menn auk þess sem heim­ild er til staðar sam­­­­kvæmt ákvörðun rík­­­­is­­­­stjórnar að ráða þrjá til við­­­­bótar ef þörf kref­­­­ur.

Einn þeirra er sér­­stakur upp­­lýs­inga­full­­trúi rík­­is­­stjórn­­­ar­innar sem starfar innan for­­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Þá gegnir Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir stöðu aðstoð­ar­manns rík­is­stjórn­ar­innar í starfi sínu sem verka­stjóri stjórn­ar­skrárend­ur­skoð­un­ar. Ekki þarf að aug­lýsa aðstoð­­ar­­manna stöður heldur eru þeir sem sinna þeim störfum valdir af hverjum ráð­herra fyrir sig, enda oft­­ast um að ræða nán­­ustu sam­­starfs­menn ráð­herra á meðan að hann gegnir emb­ætti.

Auglýsing

Aðstoð­­ar­­menn ráð­herra fengu umtals­verða launa­hækkun sum­­­arið 2016, þegar laun skrif­­stofu­­stjóra í ráðu­­neytum voru hækkuð um allt að 35 pró­­sent.

Laun aðstoð­­ar­­manna mið­­ast við laun skrif­­stofu­­stjór­anna. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­­ar­­manna um 1,2 millj­­ónir króna á mán­uði. Aðstoð­­ar­­menn ráð­herra eru með Ein­ari 22 tals­ins, að með töldum upp­­lýs­inga­­full­­trúa rík­­is­­stjórn­­­ar­inn­­ar. Enn er svig­­rúm til að ráða allt að þrjá aðstoð­­ar­­menn til við­­bót­­ar.

Sam­kvæmt til­kynn­ingu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins lauk Einar emb­ætt­is­prófi í lög­fræði árið 1998 og öðl­að­ist hér­aðs­dóms­lög­manns­rétt­indi árið 2000 en hann er einnig lög­giltur fast­eigna­sali. Þá afl­aði hann sér fram­halds­mennt­unar í hag­fræði og reglum Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar við Harvard háskóla árið 2003 og í enskum sjó- og við­skipta­rétti við Lloyd´s Maritime Academy 2008 og við London Metropolitan Uni­versity 2011-2013 með sér­stakri áherslu á enskan sjó­trygg­inga­rétt og sigl­ingar á heim­skauta­slóð­um. Á meðan Einar stund­aði laga­nám var hann við náms­vist í dóms- og kirkju­mála­ráðu­neyt­inu og sat í stjórn Heimdallar árin 1998-1999.

Einar starf­aði sem lög­fræð­ingur í sam­göngu­ráðu­neyt­inu árin 1998-2002 og hafði umsjón með fjar­skipta­málum og stefnu­mót­un. Árið 2002 hóf hann störf sem erind­reki Íslands gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu á sviði fjar­skipta-, sam­göngu- og ferða­mála. Á árunum 2003-2010 var Einar lög­fræð­ingur hjá Eft­ir­lits­stofnun EFTA þar sem hann hafði umsjón með inn­leið­ing­ar­eft­ir­liti EES lög­gjafar á sviði fjar­skipta-, póst-, sjón­varps- og upp­lýs­inga­sam­fé­lags­þjón­ustu, sam­gangna og almanna­varna auk til­skip­unar um raf­ræn við­skipti í Nor­egi, Íslandi og Liechten­stein. Ábyrgð hans færð­ist yfir á svið sam­göngu­lög­gjafar að und­an­skildum flug­málum í þessum löndum árið 2005 auk almanna­varna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent