Öllu tjaldað til hjá Justin Timberlake - Stjörnum prýddar auglýsingar

Tónlistarmaðurinn Justin Timberlake var með hálfsleiksatriði í leiknum um Ofurskálina í NFL í Bandaríkjunum í nótt. Auglýsingarnar vöktu athygli, eins og svo oft áður.

JUstinTimberlake
Auglýsing

Phila­delphia Eag­les lagði New Eng­land Pat­riots í leiknum um Ofur­skál­ina í nótt, 41 - 33. Spennan var mikil fram á síð­ustu stundu, en Eag­les hafði þó yfir­hönd­ina í stigum lengst af. 

Justin Tim­berlake var með hálf­sleikatriðið í leiknum og er óhætt að segja að öllu hafi verið tjaldað til í því. Hápunkt­ur­inn á flutn­ingi hans var þegar hann söng lagið I Would Die 4 U, á meðan tón­list­ar­mað­ur­inn Prince birt­ist á blakt­andi tjaldi syngj­andi með. 

Auglýsing




Prince lést 21. apríl 2016 en hann fædd­ist í Minnesota, þar sem leik­ur­inn fór fram að þessu sinni. Justin vildi með þessu votta Prince virð­ingu sína en þeir voru miklir vin­ir, og hefur Justin lýst honum sem sínum mesta áhrifa­valdi.

Prince var með eitt umtal­að­asta og besta atriði í sögu Ofur­skálar­inn­ar, þegar hann var með atriðið árið 2007, í míg­andi rign­ingu og þrumu­veðri í Florida. Hann lauk atriði sínu á epísku gít­ar­sólói í lag­inu Purple Rain, þar sem hann birt­ist með gít­ar­inn á fjólu­bláu tjaldi, ekki ósvip­uðu því sem áhorf­endur fengu að sjá hjá Justin Tim­berla­ke. 



Aug­lýs­ing­arnar voru af dýr­ari gerð­inni að þessu sinni, og en aug­lýs­ingar í kringum leik­inn eru dýr­asti aug­lýs­inga­tím­inn í sjón­varpi í Banda­ríkj­un­um, ár hvert. Þær aug­lýs­ingar sem vöktu einna mesta athygli í aðdrag­anda leiks­ins voru aug­lýs­ingar frá Doritos og Amazon. Hjá þeim síð­ar­nefndu birt­ust þekkar stjörnur í aug­lýs­ingu þar sem Alexa, varan frá Amazon, átti að hafa misst rödd­ina. 

Ant­hony Hop­k­ins, Gor­don Ramsay og Jeff Bezos, for­stjóri og stofn­andi Amazon, komu meðal ann­ars fram í aug­lýs­ing­unn­i. 

Hópur Íslend­inga birt­ist einnig í aug­lýs­inga­hléi leiks­ins. Í þeirri aug­lýs­ingu var verið að aug­lýsa Dodge Ram bif­reið, og var Magnús Ver Magn­ús­son, kraft­lyft­inga­mað­ur, þar fremstur í flokki.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent