Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), hefur verið ráðin til Bláa Lónsins. Hún hefur störf 1. júní næstkomandi. Samhliða mun hún láta af störfum fyrir SAF.
Í tilkynningu frá Bláa lóninu kemur fram að Helga muni verða framkvæmdastjóri Blue Lagoon Journeys ehf, dótturfélags Bláa Lónsins, sem vinnur að þróunarverkefnum félagsins á sviði ferðaþjónustu. Þessi ráðning styður auknar áherslur Bláa Lónsins á þeim vettvangi. Starfið heyrir beint undir forstjóra og mun Helga taka sæti í stjórnendateymi Bláa Lónsins.
Helga segir að verkefni tengd frekari þróun og nýsköpun Bláa Lónsins séu spennandi og að gaman sé að fá að takast á við þau með öflugu starfsfólki og forstjóra, sem hún hafi átt mjög gott og farsælt samstarf við á síðustu árum á vettvangi SAF. „Fyrirtækið er leiðandi í ferðaþjónustu á Íslandi og er það von mín að kraftar mínir og reynsla muni nýtast vel í þeim fjölmörgu þróunarverkefnum sem framundan eru.“
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins og stjórnarformaður SAF, segir að umhverfi ferðaþjónustunnar sé nú að taka byltingarkenndum breytingum, ekki síst vegna stafrænar þróunar. „Það er afar ánægjulegt að hafa fengið Helgu til liðs við Bláa Lónið til að leiða mjög áhugaverð verkefni á þeim vettvangi. Ég hef starfað með Helgu undanfarin 4 ár sem formaður SAF þar sem hún hefur unnið frábært starf. Bláa Lónið er í miklum vexti. Hjá okkur starfa nú rúmlega 700 manns en á næstu vikum opnum við nýtt upplifunarsvæði og hótel við Bláa Lónið. Starfsemi félagsins er í stöðugri þróun og mörg spennandi verkefni sem við vinnum nú að. Það er því mikill akkur af því að fá Helgu til liðs við okkur í þessi mikilvægu verkefni.