Helga Árnadóttir ráðin til Bláa Lónsins

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, hefur ráðið sig til Bláa Lónsins. Hún mun hætta störfum hjá samtökunum.

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri, SAF
Auglýsing

Helga Árna­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka ferða­þjón­ust­unnar (SAF), hefur verið ráðin til Bláa Lóns­ins. Hún hefur störf 1. júní næst­kom­andi. Sam­hliða mun hún láta af störfum fyrir SAF. 

Í til­kynn­ingu frá Bláa lón­inu kemur fram að Helga muni verða fram­kvæmda­stjóri Blue Lagoon Jour­neys ehf, dótt­ur­fé­lags Bláa Lóns­ins, sem vinnur að þró­un­ar­verk­efnum félags­ins á sviði ferða­þjón­ustu. Þessi ráðn­ing styður auknar áherslur Bláa Lóns­ins á þeim vett­vangi. Starfið heyrir beint undir for­stjóra og mun Helga taka sæti í stjórn­enda­teymi Bláa Lóns­ins.

Helga segir að verk­efni tengd frek­ari þróun og nýsköpun Bláa Lóns­ins séu spenn­andi og að gaman sé að fá að takast á við þau með öfl­ugu starfs­fólki og for­stjóra, sem hún hafi átt mjög gott og far­sælt sam­starf við á síð­ustu árum á vett­vangi SAF.  „Fyr­ir­tækið er leið­andi í ferða­þjón­ustu á Íslandi og er það von mín að kraftar mínir og reynsla muni nýt­ast vel í þeim fjöl­mörgu þró­un­ar­verk­efnum sem framundan eru.“

Auglýsing

Grímur Sæmund­sen, for­stjóri Bláa lóns­ins og stjórn­ar­for­maður SAF, segir að umhverfi ferða­þjón­ust­unnar sé nú að taka bylt­ing­ar­kenndum breyt­ing­um, ekki síst vegna staf­rænar þró­un­ar. „Það er afar ánægju­legt að hafa fengið Helgu til liðs við Bláa Lónið til að leiða mjög áhuga­verð verk­efni á þeim vett­vangi. Ég hef starfað með Helgu und­an­farin 4 ár sem for­maður SAF þar sem hún hefur unnið frá­bært starf.  Bláa Lónið er í miklum vexti. Hjá okkur starfa nú rúm­lega 700 manns en á næstu vikum opnum við nýtt upp­lif­un­ar­svæði og hótel við Bláa Lón­ið.   Starf­semi félags­ins er í stöðugri þróun og mörg spenn­andi verk­efni sem við vinnum nú að.  Það er því mik­ill akkur af því að fá Helgu til liðs við okkur í þessi mik­il­vægu verk­efni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent