Lárus L. Blöndal hæstaréttarlögmaður og stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins verður formaður starfshóps sem vinna á hvítbók um framtíðarsýn og stefnu fyrir fjármálakerfið á Íslandi.
Í yfirlýsingu frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að markmiðið sé að skapa traustan grundvöll fyrir umræðu, stefnumörkun og ákvarðanatöku um málefni er varða fjármálakerfið, framtíðargerð þess og þróun.
Með Lárusi í hópnum verða Guðrún Ögmundsdóttir, forstöðumaður lausafjáráhættu og fjármálafyrirtækja hjá Seðlabanka Íslands, Guðjón Rúnarsson, lögmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, hagfræðingur hjá Oliver Wyman í Svíþjóð og Sylvía K. Ólafsdóttir, deildarstjóri jarðvarmadeildar á orkusviði Landsvirkjunar. Starfshópnum er falið að ljúka vinnu sinni fyrir 15. maí með skýrslu til fjármála- og efnahagsráðherra.
Kveðið var á um stofnun hópsins í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem lögð var áhersla á að stefnumarkandi ákvarðanir um fjármálakerfið verði teknar eftir umfjöllun Alþingis um framtíðarsýn fjármálakerfisins á Íslandi sem byggi á þessari hvítbók um efnið. Hvítbókin hafi að leiðarljósi aukið traust á íslenskum fjármálamarkaði, aukið gagnsæi og fjármálastöðugleika. Í sáttmálanum segir einnig að ríkisstjórnin vilji vinna að frekari skilvirkni í fjármálakerfinu, að dregið verði úr áhættu vegna óskyldra þátta í starfsemi fjármálafyrirtækja og að sérstaklega verði litið til annarra lítilla opinna hagkerfa og reynslu annars staðar á Norðurlöndunum við mótun framtíðarsýnarinnar.