Innergex orðið stærsti eigandi HS Orku - Greiddi upp skuldabréf við OR

Kanadíska orkufyrirtækið Innergex er formlega orðið eigandi að 53,9 prósent hlut í HS Orku, sem á nokkur orkuver á Íslandi og 30 prósent hlut í Bláa Lóninu.

Ásgeir Margeirsson er forstjóri Hs Orku.
Ásgeir Margeirsson er forstjóri Hs Orku.
Auglýsing

Kaup kanadíska fyr­ir­tæk­is­ins Inn­ergex Renewa­ble Energy á Alt­erra Power, stærsta eig­anda HS Orku, gengu form­lega í gegn í gær. Kaup­verðið er 1,1 millj­arður Kana­dal­ir, eða um 89 millj­arðar króna.

Kjarn­inn greindi frá því að sam­þykkt hefði verið að selja Alt­erra Power til Inn­ergex í lok októ­ber síð­ast­lið­ins. Nú er hins vegar búið að ganga form­lega frá kaup­unum og 53,9 pró­sent hlutur Alt­erra Power í HS Orku, sem fyr­ir­tækið átti í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt Magma Energy Sweden, er nú í eigu Inn­ergex, sem er skráð á markað í Kanada. Aðrir eig­endur HS Orku eru félagið Jarð­varmi, sem er í eigu íslenskra líf­eyr­is­­sjóða.

Sam­hliða því að gengið var form­lega frá kaup­unum hafa nýir eig­endur greitt upp svo­kallað „Mag­ma-skulda­bréf“ sem gefið var út í tengslum við kaup Magma Energy Sweden á hlut Orku­veitu Reykja­víkur (OR) í HS Orku árið 2009. Loka­greiðslan nam um 39 millj­ónum Banda­ríkja­dala, sem svara til tæp­lega fjög­urra millj­arða króna og var á gjald­daga í apríl 2018.

Auglýsing

Á 30 pró­sent hlut í Bláa lón­inu

HS Orka er eina íslenska orku­fyr­ir­tækið sem er í eigu einka­að­ila. HS Orka á og rekur orku­ver í Svarts­engi og á Reykja­­nesi auk þess sem virkj­ana­­kostir sem fyr­ir­tækið á eru í nýt­ing­­ar­­flokki ramma­á­ætl­­un­­ar.

HS Orka skil­aði 2,8 millj­­arða króna hagn­aði árið 2016 og eignir félags­­ins voru metnar á um 45 millj­­arða króna. Á meðal þeirra eigna er 30 pró­­sent hlutur í Bláa lón­inu sem met­inn var á 1,8 millj­­arð króna í síð­­asta birta árs­­reikn­ingi HS Orku. Í fyrra bár­ust nokkur til­­­boð í þann hlut sem voru yfir ell­efu millj­­örðum króna. Alt­erra vildi taka þeim til­­­boðum en Jarð­varmi hafn­aði því og for­svar­s­­maður fyr­ir­tæk­is­ins sagði að til­­­boðin end­­ur­­spegl­uðu ekki verð­­mæti Bláa Lóns­ins. Heild­­­ar­virði Bláa lóns­ins sam­­­kvæmt til­­­­­boð­unum sem fyrir lágu var 37 millj­­­arðar króna.



For­svar­s­­menn Alt­erra voru ekki ánægðir með að til­­­boð­unum hafi ekki verið tek­ið. En minn­i­hluta­eig­end­­urnir í HS Orku, Jarð­varmi sem er í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­­sjóða, gátu hafnað þeim vegna hlut­hafa­­­sam­komu­lags um minn­i­hluta­vernd sem gert var þegar Jarð­varmi keypti upp­­­haf­­­lega hlut í HS Orku sum­­­­­arið 2011.

Umdeild kaup á sínum tíma

Alt­erra, sem þá hét Magma Energy, keypti sig inn í HS Orku árið 2009. Við­­skiptin voru mjög umdeild og þáver­andi stjórn­­völdum hugn­að­ist þau ekki. Þrátt fyrir ítrek­aðar inn­­­grip­stil­raunir hélt Mag­ma/Alt­erra áfram að eign­­ast hluti í HS Orku og átti vorið 2011 nán­­ast allt hluta­­féð í fyr­ir­tæk­in­u.

Jarð­varmi keypti svo hlut í HS Orku í maí 2011 og nýtti kaup­rétt á við­­bót­­ar­hlut ári síð­­­ar. Sam­an­lagt á það félag núna 33,4 pró­­sent hlut. Síð­sum­ars keypti svo fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn Örk 12,7 pró­­sent hlut, en Alt­erra átti rest þar til í gær. Inn­­­lendir aðilar eiga því 46,1 pró­­sent hlut í HS Orku á móti Inn­ergex, sem á 53,9 pró­sent.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent