„Það eru engir brúnir krakkar á KrakkaRÚV“

Erlendum ríkisborgurum sem búa hérlendis er að fjölga meira en nokkru sinni fyrr. Um er að ræða mestu samfélagsbreytingu sem átt hefur sér stað. Sú breyting er efni Kjarnans á Hringbraut í kvöld. Gestir eru Edda Ólafsdóttir og Nichole Leigh Mosty.

Auglýsing

„Það eru engir brúnir krakkar á Krakk­aRÚV,“ sagði sonur Nichole Leigh Mosty, fyrr­ver­andi þing­manns og verk­efna­stjóra hjá þjón­ustu­mið­stöð Breið­holts, við hana í morg­un. Hann sagði að mamma hans yrði að tala við RÚV, enda sé veru­leiki hans, sem á vini frá Nepal, Fil­ipps­eyj­um, Senegal og fleiri lönd­um, allt annar en sá en birt­ist honum á Krakk­aRÚV. „Ef hann er að fatta þetta þá þurfum við bók­staf­lega að hugsa inn á við og segja: „við þurfum að gera eitt­hvað í þessu.“

Þetta kemur fram í við­tali við Nichole í fyrsta sjón­varps­þætti Kjarn­ans á árinu, sem sýndur verður á Hring­braut í kvöld klukkan 21. Brot úr við­tal­inu má sjá í spil­ar­anum hér að ofan.

Þar verða til umræðu þær miklu sam­fé­lags­breyt­ingar sem orðið hafa á Íslandi á und­an­förnum árum vegna fjölg­unar erlendra rík­is­borg­ara sem sest hafa hér að. Nichole ræðir einnig ítar­lega #Metoo-frá­sagnir kvenna af erlendum upp­runa og af hverju sá hópur sker sig frá öðrum sem hefur stigið fram með frá­sagnir undir hatti sömu bylt­ing­ar.

Auglýsing

78 pró­sent af mann­fjölda­fjölgun á land­inu á síð­asta ári var vegna fjölg­unar útlend­inga sem hingað fluttu. Þeim hefur fjölgað um 81 pró­sent frá 2011 og eru nú tæp­lega 38 þús­und tals­ins. Það búa því um þrjú þús­und fleiri erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi en búa alls í Kópa­vogi. Og mann­fjölda­spár gera ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram næstu árin. Spá Hag­stofu Íslands reiknar með að fjölgun erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi verði 77-111 pró­sent á tíma­bil­inu 2017-2022.

Edda Ólafsdóttir. MYND: Hringbraut.Gestur þátt­ar­ins, auk Nichole, er Edda Ólafs­dótt­ir, félags­ráð­gjafi og verk­efn­is­stjóri á vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar. Hún ræðir hvernig Reykja­vík­ur­borg hefur tek­ist á við þá miklu fjölgun komu­fólks sem sest hefur að í borg­inni á und­an­förnum árum og þær áskor­anir sem slíkum sam­fé­lags­breyt­ingum fylgja. „Þetta eru áskor­anir á mjög mörgum svið­um. Við erum búin að taka lítil skref en nú eru kosn­ingar í vor og ég vona að þessi mála­flokkur fái aukið vægi þar og það verði rætt svo­lítið um hvernig sveit­ar­fé­lagið ætlar að bregð­ast við þess­ari nýju stöð­u.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent