Samþykkt að greiða hluthöfum Arion banka tugi milljarða króna

Hluthafafundur í Arion banka var haldinn í morgun. Þar var samþykkt heimild til að kaupa bréf af hluthöfum og greiða þeim út arð. Eigið fé bankans minnkar um þrjú prósent við aðgerðina.

Arion.Banki_.4.jpg
Auglýsing

Sam­þykkt var á hlut­hafa­fundi í Arion banka í morgun að veita tíma­bundna heim­ild til að kaupa til baka hluta­bréf útgefin af bank­anum af núver­andi hlut­höfum hans. Hún heim­ilar að stjórn bank­ans geti keypt allt að 200 millj­ónir hluta í bank­anum á allt að 18,8 millj­arða króna. Um er að ræða allt að tíu pró­sent hlut í Arion banka.  

Þá var einnig sam­þykkt að greiða út 25 millj­arða króna í arð­greiðslu til hlut­hafa, en end­ur­kaup á hluta­bréfum drag­ast frá þeirri greiðslu. Arð­greiðslan er skil­yrt því að Kaup­­þing ehf., stærsti eig­andi Arion banka, muni ná að selja að minnsta kosti tvö pró­­sent af eign sinni í bank­­anum fyrir 15. apríl næst­kom­andi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar. Þar segir enn frem­ur: „Arð­greiðsla og kaup á eigin bréfum sem sam­þykkt var á hlut­hafa­fundi bank­ans er að fullu í sam­ræmi við lang­tíma­mark­miði Arion banka um að minnka umfram eigið fé bank­ans. Að fram­kvæmd lok­inni lækkar eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans um ríf­lega 3 pró­sent en er engu að síður vel umfram kröfur FME og það sem bank­inn telur hæfi­leg­t.“

Auglýsing

Líf­eyr­is­sjóðir ætla ekki að kaupa

Í dag rann út frestur íslenskra líf­eyr­is­sjóða til að svara til­boði Kaup­þings um að kaupa hlut í Arion banka áður en að bank­inn verður skráður á mark­að. Sjóð­irnir höfn­uðu því að kaupa hlut sem stend­ur. Við­mæl­endur Kjarn­ans segja hins vegar ekki úti­lokað að íslensk trygg­inga­fé­lög og önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki kaupi hluti í Arion banka fyrir útboð. Kaup­geta þeirra er næg til þess að hægt verði að losa að minnsta kosti tvö pró­sent í bank­anum og þar með upp­fylla það skil­yrði sem er sett fyrir arð­greiðsl­unni.

Kaup­­þing er stærsti eig­andi Arion banka með um 57 pró­­sent hlut. Vog­un­­­­­­ar­­­­­­sjóð­irn­ir Taconic Capi­tal, Och-Ziff CapitalM­ana­gement, Attestor Capi­tal og fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­bank­inn Gold­man Sachs eiga sam­an­lagt 29,59 pró­­­­­­­sent hlut í bank­­anum og íslenska ríkið á 13 pró­­sent hlut.

Verði greiddir út 25 millj­arðar króna, bæði vegna end­ur­kaupa og arð­greiðslu, má ætla að íslenska ríkið fá um 3,3 millj­arða króna í sinn hlut.

Geta fengið háar bón­us­greiðslur tak­ist að selja allar eignir

Stefnt hefur verið að sölu á Arion banka í tölu­vert langan tíma. Kaup­­­þing ehf., eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi eignir þrota­­­bús hins fallna banka, hélt á 87 pró­­­sent hlut í Arion banka eftir að gengið hafði verið frá upp­­­­­gjöri milli þeirra og rík­­­is­ins í byrjun árs 2016. Og ríkið hélt áfram á 13 pró­­­sent hlut.

Í sam­komu­lag­inu við kröf­u­haf­anna stóð líka að íslenska ríkið ætti for­­­kaups­rétt á hlutum í Arion banka ef bank­inn yrði seldur fyrir virði sem væri 80 pró­­­­sent eða minna af bók­­­­færðu eigin fé. Söm­u­­­leiðis getur ríkið geti leyst Arion banka til sín ef ekki tæk­ist að selja hann fyrir árs­­­lok 2018.

Í ágúst 2016 var greint frá því að um 20 starfs­­­menn Kaup­­­þings gætu fengið allt að 1,5 millj­­­arða króna í bón­us­greiðslur ef mark­mið um hámörkun á virði óseldra eigna myndi nást. Þessar bón­us­greiðslur ættu að greið­­­ast út eigi síðar en í lok apríl 2018. Langstærsta óselda eignin á þeim tíma var 87 pró­­­sent hlutur Kaup­­­þings í Arion banka. Og sú eign er enn að hluta óseld.

Sam­­­kvæmt upp­­­lýs­ingum frá Kaup­­­þingi þá verða bón­us­greiðsl­­­urnar að óbreyttu greiddar út fyrir lok apr­íl. Þau við­­­skipti sem áttu sér stað með hluti í Arion banka í fyrra hafa áhrif á umfang þeirra en fyr­ir­hugað hluta­fjár­­­út­­­­­boð á eft­ir­stand­andi 57,4 pró­­­sent hlut Kaup­­­þings mun ekki gera það.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent