Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og forstjóri Bláa lónsins, hefur upplýst kjörnefnd og meðstjórnarmenn sína hjá SAF um að hann hafi ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi starfa sem formaður SAF á næsta aðalfundi samtakanna þann 21.mars n.k.
Frá þessu er greint á vefnum Túristi.is.
Í viðtali við Túrista segir Grímur að hann hafi núna sinnt formannsstarfinu undanfarin fjögur ár sem hafi verið mikill umbrotatími í ferðaþjónustunni og vaxtarskeiðið fordæmalaust í nokkurri atvinnugrein á Íslandi.
Það verkefni segir Grímur að hafi verið gefandi og skemmtilegt en um leið mjög tímafrekt og krefjandi þannig að nú telji hann við hæfi að einhver annar stigi fram og tæki við kyndlinum.
„Að mínu mati hefur starfsemi SAF eflst mikið á undanförnum fjórum árum og staða samtakanna er nú sterk sem helsta málsvara og hagsmunagæsluaðila stærstu útflutningsatvinnugreinar landsins. Þennan árangur má ekki síst þakka frábæru starfsfólki á skrifstofu samtakanna. Þess sem velst til forystu á næsta aðalfundi bíða áhugaverð og krefjandi verkefni við að standa vörð um þann árangur sem náðst hefur og sækja enn fram félagsmönnum SAF til heilla,“ segir Grímur í viðtali við Túrista.