Farið verður yfir hvernig upplýsingum um starfskjör alþingismanna verður miðlað framvegis á fundi forsætisnefndar næstkomandi mánudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forseta alþingis, Steingrími J. Sigfússyni.
Í henni kemur jafnframt fram að í dag og undanfarna daga hafi honum, þingmönnum öllum og skrifstofu þingsins borist fjöldinn allur af fyrirspurnum um starfskjör alþingismanna, um nánast alla þætti þeirra, ýmist með ósk um upplýsingar um heildarkostnað eða sundurgreindar greiðslur og endurgreiðslur til einstakra þingmanna.
„Næst á dagskrá í þessu máli er að forsætisnefnd Alþingis mun halda áfram umfjöllun sinni um þær reglur sem í gildi eru og taka þær til endurskoðunar, fyrirkomulag þeirra, eftirfylgni og upplýsingagjöf. Fyrsta skrefið er fundur forsætisnefndar nk. mánudag þar sem málið verður rætt og m.a. farið yfir hvernig upplýsingum um þessi mál verður miðlað framvegis. Eins og kom fram í tilkynningu minni fyrr í vikunni hafa hugmyndir og drög að reglum í þeim efnum verið til umræðu í nefndinni um allnokkurn tíma.
Beiðnum fjölmiðla um frekari upplýsingar verður vísað inn í vinnu forsætisnefndar og henni hraðað eins og kostur er,“ segir í tilkynningunni.
Í frétt Kjarnans frá því í fyrradag kemur fram að til skoðunar hafi verið á undanförnum mánuðum, og meðal annars rætt í forsætisnefnd Alþingis, að auka upplýsingagjöf um kjör og starfskostnaðargreiðslur alþingismanna þannig að aðgangur að þeim verði öllum auðveldur og þær birtar á vef þingsins. „Fyrir hafa legið í drögum reglur um fyrirkomulagið og hefur í þeim efnum verið horft til þess hvernig önnur þing haga upplýsingum um þessi mál. Markmiðið er að engin leynd sé yfir neinu sem varðar almenn kjör og greiðslur til þingmanna og fullkomið gagnsæi ríki. – Þingmönnum er að auðvitað í sjálfsvald sett hvaða upplýsingum þeir koma sjálfir á framfæri um sín kjör, eins og verið hefur,“ sagði í tilkynningu frá forseta alþingis í fyrradag.
Ástæða þess að fjöldi fyrirspurna hefur borist frá fjölmiðlum er sú að síðastliðinn fimmtudag svaraði forseti Alþingis fyrirspurn Björns Leví Gunnarssonar, þingmanns Píratar, um aksturskostnað. Í svari forseta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þingmenn sem fengu hæstu skattlausu endurgreiðslurnar þáðu á síðustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, gekkst hins vegar við því í samtali við RÚV á föstudagsmorgun að vera sá sem trónir á toppi listans. Hann fékk samtals 4,6 milljónir króna endurgreiddar í fyrra, eða 385 þúsund krónur á mánuði skattfrjálst. Greiðslurnar til Ásmundar voru um 16 prósent af heildarendurgreiðslum til þingmanna vegna aksturs. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvaða aðrir þingmenn eru á topp tíu listanum.
Fjölmiðlar hafa árum saman reynt að fá upplýsingar um hvaða þingmenn fái endurgreiðslu vegna aksturs, en án árangurs. Kjarninn fjallaði til að mynda um málið í fréttaskýringu árið 2015 þar sem fram kom að alls 28 þingmenn hefðu fengið endurgreiðslu á árinu 2014, þar af 18 yfir eina milljón króna. Ekki var hins vegar hægt að fá upplýsingar um hvaða þingmenn var að ræða. Þær upplýsingar þóttu þá sem nú of persónulegar.