Laun starfsmanna ríkisins sem eru í aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands fá nú í fyrsta sinn svokallaða launaskriðstryggingu sem gefur að meðaltali 1,8 prósenta hækkun á laun afturvirkt frá 1. janúar 2017. Leiðréttingin kemur til útborgunar á flestum stöðum þann 1. mars. Þetta er gert á grundvelli rammasamkomulags í tengslum við síðustu kjarasamninga til að tryggja að launaskrið á almennavinnumarkaðnum nýtist líka starfsfólki hjá hinu opinbera.
Í tilkynningu frá Starfsgreinasambandinu er haft eftir Birni Snæbjörnssyni að hann fagni því að leiðréttingin sé nú í hendi „og tryggir að fólk í okkar félögum fái hluta launaskriðsins sem er á almenna vinnumarkaðnum. Það hefur oft í gegnum árin verið þannig að fólk innan hins opinbera nýtur ekki launaskriðs í sama mæli og á almenna markaðnum. Því er þetta fagnaðarefni,“ segir Björn.
Tryggingin er mæld út frá launaskriði árin 2013 til 2016 en annað uppgjör verður svo gert fyrir árin 2017 og 2018 og leiðrétt ef tilefni er til.
Útfærsla tryggingarinnar er misjöfn eftir landssamböndum en ákveðið var að SGS myndi feta sig í átt að nýrri launatöflu líkt og flest opinber félög innleiddu í síðustu kjarasamningum. Því eru allir starfsmenn færðir í 6. þrep launatöflunnar, sem er efsta þrepið og taflan hækkuð öll um 1 prósent. Þetta gerir það að verkum að fólk ber aðeins misjafnt úr býtum eftir aldri og röðun í launatöflu, en launatöflur eru þá ekki háðar lífaldri lengur og því verður auðveldara að breyta töflunni til samræmis við aðra í næstu kjarasamningum. Félagsmenn sem starfa við ræstingar fá 1,8 prósenta hækkun á tímamælda og flatamælda ákvæðisvinnu.