Segist aldrei geta fyrirgefið svik verkalýðsforystunnar við alþýðuna

Ragnar Þór Ingólfsson var kjörinn formaður VR í fyrra. Hann segir fæsta finna fyrir og sjá hið meinta góðæri. Ragnar var gestur sjónvarpsþáttar Kjarnans á Hringbraut í vikunni og ræddi þar stéttabaráttuna sem liggur í loftinu.

Auglýsing

„Ég get aldrei fyr­ir­gefið for­yst­unni svikin við alþýð­una með svo marg­vís­legum hætti sem gerð­ist hér eftir hrun. Þetta er staðan sem við erum með uppi í dag út frá því. Ég býð mig fram sem for­mann VR sem van­traust á for­ystu Alþýðu­sam­bands­ins. Sem mér finnst vera í bíl­stjóra­sæt­inu í þessu van­trausti á verka­lýðs­hreyf­ing­una sem við sitjum uppi með. Þetta er ekki bara VR. Við erum að sjá þetta í Efl­ingu og við erum búin að sjá þetta í Kenn­ara­sam­band­in­u.“ Þetta segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, í nýjasta sjón­varps­þætti Kjarn­ans á Hring­braut. Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni í spil­ar­anum hér að ofan.

Þar segir Ragnar að fæstir virð­ist finna og sjá það meinta góð­æri sem eigi að standa yfir á Íslandi og að fólk sé orðið þreytt á þeirri stöðu sem boðið sé upp á. Ef rót­tækt fram­boð Sól­veigar Önnu Jóns­dótt­ur, sem einnig var gestur þátt­ar­ins, sigrar í stjórn­ar­kjöri í Efl­ingu sé komið allt annað lands­lag í íslenskri verka­lýðs­bar­áttu.

Dró vig­línu

Ragnar segir að hann hafi þurft að taka ákvörðun um að leggja allt í bar­áttu sína fyrir rétt­lát­ara sam­fé­lagi þegar hann hóf skrif um spill­ingu innan líf­eyr­is­sjóða fyrir mörgum árum síð­an. Hann seg­ist hafa gert sér það ljóst að með því væri hann að fara gegn kerf­inu og að það myndi geta haft áhrif á atvinnu­mögu­leika hans.

Auglýsing

„Það var ákvörðun sem ég þurfti að taka að gera þetta af ákveð­inni hug­sjón og setja allt í þetta. Það end­aði með átta ára stjórn­ar­setu í VR. Í stað­inn fyrir að hætta þá ákvað ég að taka for­manns­slag­inn. Leggja dálítið spilin á borðið og draga svolitla víg­línu, vegna þess að mér fannst þeir sem á undan mér hafa ekki farið gegn því sem er að í okkar sam­fé­lag­i.“

Þar nefnir Ragnar vexti, verð­trygg­ingu, aðkoma líf­eyr­is­sjóða að fjár­mála­kerf­inu og teng­ingu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar við fjár­mála­kerfið í gegnum líf­eyr­is­sjóð­ina. Hreyf­ingin hafi sýnt algjört getu­leysi í að taka stöðu með fólk­inu í land­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent