Sif Konráðsdóttir, sem var aðstoðarmaður umhverfisráðherra þar til nýlega, segir í yfirlýsingu að henni þyki afar leitt að hafa valdið skjólstæðingum sínum óþægindum þegar það dróst að gera upp við þá.
Hún skilaði inn lögmannsréttindum sínum eftir að hún hóf störf hjá alþjóðastofnun, eins og henni bar að gera, samkvæmt yfirlýsingunni.
„Í ljósi frétta að undanförnu vegna uppgjörs við skjólstæðinga mína frá árinu 2008 og ótímabærra starfsloka minna sem aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra vil ég gjarnan taka fram eftirfarandi. Ég lét af lögmannstörfum haustið 2007 og flutti til útlanda af persónulegum ástæðum. Í kjölfarið hóf ég störf hjá alþjóðastofnun og lagði tímabundið inn lögmannsréttindi mín, svo sem mér bar að gera. Allmörgum málum var ólokið þegar ég fór utan, þar á meðal uppgjöri við þrjá skjólstæðinga mína sem verið höfðu brotaþolar í tveimur kynferðisbrotamálum. Uppgjör við þá dróst úr hömlu af ástæðum sem ég ber ábyrgð á. Mér þykir afar leitt að hafa valdið þessum skjólstæðingum mínum óþarfa óþægindum og hugarangri umfram það sem þeir höfðu þegar mátt þola og bið þá innilega afsökunar á því. Rétt er að fram komi að fjármunirnir voru alla tíð til staðar hér á landi og allir fengu greitt að fullu, þótt það hafi dregist óhæfilega, eða þar til í janúar 2008,“ segir hún í yfirlýsingu.