Sif hættir sem aðstoðarmaður umhverfisráðherra

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur ákveðið að Sif Konráðsdóttir hætti sem aðstoðarmaður hans.

Sif Konráðsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Sif Konráðsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Auglýsing

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, hefur ákveðið að Sif Kon­ráðs­dóttir hætti sem aðstoð­ar­maður hans. Hún hættir störfum frá og með deg­inum í dag. Guð­mundur þakkar henni sam­starfið í til­kynn­ingu og óskar henni alls hins besta. 

Til­kynnt var um ráðn­ingu Sifjar 14. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Hún var því aðstoð­ar­maður ráð­herra í rúma tvo mán­uð­i. 

Kjarn­inn birti við­tal við Ólöfu Rún Ásgeirs­dótt­ur, þol­anda í kyn­ferð­is­máli, fyrir tveimur dög­um. Þar greindi hún frá því að hún væri ósátt við traust ráð­herr­ans á Sif. Ólöf hafi upp­lifað það sem sjálf­­stætt brot þegar Sif, þá rétt­­ar­­gæslu­­maður henn­­ar, hafi ekki greitt henni miska­bætur sem henni voru dæmdar vegna kyn­ferð­is­brots­ins. Ólöf þurfti að leita sér aðstoðar ann­­ars lög­­­manns til að inn­­heimta bæt­­urnar sem á end­­anum feng­ust greidd­­ar. „Mér fannst hún með þessu gera svo lítið úr brot­inu, þetta litla sem við fengum að geta ekki borgað okkur þetta strax. Ef ég myndi stela úr fyr­ir­tæk­inu sem ég er að vinna hjá, en seint og síðar meir borga það til baka, þá fengi ég ekk­ert að halda vinn­unn­i,“ sagði Ólöf í við­tal­in­u. 

Auglýsing
Í við­tali Guð­­mundar Inga við Vísi um síð­ustu helgi kom fram að honum væri ekki kunn­ugt um hvaðan þeir fjár­­munir komu sem voru greiddir til skjól­­stæð­inga Sifj­­ar. Hann sagð­ist hafa þær heim­ildir að þetta hafi verið greitt af reikn­ingum hérna heima sem hann standi í trú um að séu þessir svoköll­uðu fjár­­vörslu­­reikn­ing­­ar, en ekki fengið það stað­­fest. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent