„Félagsfundur Sósíalistaflokks Íslands felur framkvæmdastjórn flokksins að undirbúa framboð til borgarstjórnar Reykjavíkur í vor á vegum flokksins, kalla saman kjörstjórn skv. ákvæðum í lögum og skipulagi flokksins, stuðla áfram að kröftugri umræðu um sveitarstjórnarmál meðal flokksmanna og kanna möguleika á framboðum í öðrum sveitarfélögum.“
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gunnari Smára Egilssyni, formanni framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands. Félagsfundur flokksins ákvað þetta í dag, en fundurinn hefur falið málefnastjórn flokksins að skipa málefnahóp til að móta „grunnstefnu í sveitarstjórnarmálum og félagstjórn að efla starf meðal félaga út í hverfum borgarinnar, eins og segir í tilkynningu.
Jafnframt segir í tilkynningunni að framboð til borgarstjórnar sé eðlilegt framhald á kröfunni um endurreisn verkalýðshreyfingarinnar. „Framboð til borgarstjórnar er eðlilegt framhald af kröfu um endurreisn verkalýðshreyfingarinnar. Reykjavíkurborg rekur blóðuga láglaunastefnu gegn launafólki sínu, ber mikla sök á húsnæðiskreppunni sem grefur undan lífskjörum launafólks og hefur ýtt undir uppbyggingu húsnæðisbrasks, leigufyrirtækja og völd verktaka sem hafa stórgrætt á húsnæðisvanda hinna verst settu. Fólkið í borginni þarf að rísa upp og endurheimta Reykjavíkurborg, krefjast þess að sveitarfélagið þeirra þjóni hagsmunum fjöldans en ekki hinum fáu, ríku og voldugu,“ segir í tilkynningunni.