Sendiráðum Íslands í Vín í Austurríki og Mapútó í Mósambík verður lokað. Þetta er gert í hagræðingarskyni. Í Vín verður áfram starfrækt fastanefnd gagnvart Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) og öðrum alþjóðastofnunum í Vín.
Nýr forsetaúrskurður um sendiráð, fastanefndir hjá alþjóðastofnunum og sendiræðisskrifstofur tók gildi í dag. Samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu felur úrskurðurinn meðal annars í sér lokun þessara tveggja sendiráða, bætt tengsl við lykilríki í Afríku og tilfærslu á fyrirsvari Íslands gagnvart rúmlega fjörutíu ríkjum.
Breytingarnar á forsetaúrskurðinum eiga sér rætur í skýrslu um utanríkisþjónustu til framtíðar sem kom út í september síðastliðnum og inniheldur meira en 150 tillögur um bætta hagsmunagæslu í síbreytilegum heimi. Í skýrslunni lagði ráðuneytið að sögn áherslu á að þjóna betur viðskiptahagsmunum Íslands á erlendum vettvangi sem hafi jafnan verið ráðandi þáttur í vali á staðsetningu sendiráða. Þannig eru sendiráð Íslands í höfuðborgum þeirra ríkja sem mynda tæplega tvo þriðju hluta utanríkisviðskipta Íslands.
Þá færist fyrirsvar ríflega þrjátíu ríkja heim í utanríkisráðuneytið, m.a. á grundvelli viðskiptahagsmuna. Í ráðuneytinu hefur verið stofnuð sérstök deild sendiherra með búsetu á Íslandi, sem mun annast fyrirsvar margra þessara ríkja og á að styrkja umgjörð um mikilvæg tvíhliða samskipti og þverlæg áherslumál, svo sem jafnréttismál og jarðhitahagsmuni. Til samræmis við þá auknu áherslu á viðskiptahagsmuni í Asíu sem kynnt var í áðurnefndri skýrslu er einnig fyrirsvar gagnvart m.a. Indónesíu, Malasíu og Singapúr fært til deildar heimasendiherra í utanríkisráðuneytinu. Stofnun hinnar nýju deildar og heimfærsla fyrirsvars ríkjanna er sögð miða að því að draga úr kostnaði, enda er útsendum starfsmönnum samtímis fækkað á nokkrum sendiskrifstofum.
„Afríka er ört stækkandi markaður og því verður starfsemi sendiráðsins í Kampala efld og fyrirsvar gagnvart lykilríkjum fært þangað úr utanríkisráðuneytinu og frá sendiráði Íslands í París. Þá mun sendiráðið í Kampala einnig gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Afríkusambandinu í Addis Ababa og Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna í Nairobi, enda hefur mikilvægi þeirra aukist á undanförnum árum. Með aukinni áherslu á mannréttindi og alþjóðasamvinnu og til að auka samræmingu þessara mála innan Stjórnarráðsins, verður fyrirsvar Íslands gagnvart Evrópuráðinu í Strassborg fært í utanríkisráðuneytið,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.