Vonast eftir skýrari mynd á aðgerðum fyrir fjölmiðla á næstu mánuðum

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir að fjölmiðlar þurfi að búa við gott umhverfi. Þeir veiti stjórnmálamönnum og öllu samfélaginu aðhald og það geri alla öflugri fyrir vikið.

Auglýsing

„Tím­inn vinnur ekki með okk­ur. En það sem við erum að gera er að við erum að taka aðgerð­irn­ar, við erum að meta þær og bæta við og athuga hvað þetta mun kosta rík­is­sjóðs Íslands. Ég á reglu­lega stöðu­fundi með því teymi sem vinnur að þessu þannig að ég er að von­ast til þess að ég er að von­ast til þess að ég verði komin með nokkuð skýra mynd á næstu mán­uð­u­m.“

Þetta sagði Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, í sjón­varps­þætti Kjarn­ans á Hring­braut sem frum­sýndur var í gær­kvöldi þegar hún var spurð um vinnu vegna til­lagna sem nefnd sem um rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla skil­aði af sér til hennar í jan­ú­ar. Hægt er að sjá brot úr þætt­inum í spil­ar­anum hér að ofan.

Nefndin gerði alls til­­lögur um aðgerðir í sjö liðum sem gætu bætt rekstr­­ar­skil­yrði fjöl­miðla. Þær snúa meðal ann­­ars að stöðu Rík­­is­út­­varps­ins á aug­lýs­inga­­mark­aði, skatta­­legu umhverfi, textun og tal­­setn­ingu og end­­ur­greiðslu fram­­leiðslu­­kostn­aðar á fréttum og frétta­tengdu efni. Þá er einnig ítar­­leg sam­an­­tekt um opin­beran stuðn­­ing við fjöl­miðla í helstu nágranna­­ríkjum auk sér­­á­lits tveggja nefnd­­ar­­manna.

Auglýsing

Lilja sagði að mark­miðið væri að styðja við rekstr­ar­legt umhverfi fjöl­miðla. „Sam­keppn­in, sem kemur líka erlendis frá, hún er alveg gríð­ar­leg og ég hugsa að hún hafi aldrei verið meiri[...]Við sjáum veru­lega rekstr­ar­erf­ið­leika í grein­inni og það er bara þannig að þetta þarf að vera gott umhverfi. Þið veitið okkur aðhald, ekki bara okkur heldur öllu sam­fé­lag­inu, og það gerir okkur öll held ég aðeins öfl­ugri fyrir vik­ið.“

Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni hér að neð­an. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent