Leynd aflétt af gögnum um undanþágu Kaupþings frá gjaldeyrislögum

Seðlabanki Íslands hefur í dag birt undanþágu Kaupþings frá gjaldeyrislögum sem veitt var í janúar 2016 svo að hægt yrði að greiða kröfuhöfum hins fallna banka út. Hingað til hefur ríkt leynd um skjölin.

Bjarni og Már
Auglýsing

Seðla­banki Íslands hefur birt und­an­þág­una sem bank­inn veitti Kaup­þingi frá gjald­eyr­is­lögum þann 15. jan­úar 2016 svo Kaup­þing gæti hafið útgreiðslu til kröfu­hafa í slitabú Kaup­þings. For­senda und­an­þág­unnar var að Kaup­þing hefði upp­fyllt stöð­ug­leika­skil­yrði sem íslensk stjórn­völd höfðu sett og eiga að tryggja að útgreiðslur úr búinu ógni ekki fjár­mála­legum stöð­ug­leika né geng­is­stöð­ug­leika í íslensku hag­kerfi.

Ákvörðun um birt­ingu gagn­anna, sem hingað til hefur ríkt leynd yfir, var tekin eftir að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, sendi bréf til Seðla­bank­ans og óskaði eftir því að bank­inn kann­aði mögu­lega birt­ingu. Í bréfi Bjarna segir að vegna aðkomu rík­is­ins að mál­inu og fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á eign­ar­haldi rík­is­ins í Arion banka sé mik­il­vægt að við­haft sé eins mikið gagn­sæi og mögu­legt sé í mál­inu.

Í frétt á vef Seðla­bank­ans seg­ir: „Í sam­ræmi við lög og ákvæði í samn­ingum aðila leit­aði Seðla­bank­inn sam­þykkis Kaup­þings, Kaup­skila ehf. og Arion banka hf. fyrir birt­ing­unni, og liggur það nú fyr­ir. Ekki er þó hægt að birta upp­lýs­ingar um mál­efni ann­arra ein­stak­linga og fyr­ir­tækja en Kaup­þings, Kaup­skila og Arion banka og því strokað yfir þær þar sem við á. Þau atriði hafa hins vegar ekki efn­is­lega þýð­ingu varð­andi það sem er helsta til­efni birt­ing­ar­inn­ar, þ.e. mögu­legar breyt­ingar á eign­ar­haldi kerf­is­lega mik­il­vægs banka. Í ljósi þess að und­an­þágan og mál­efni henni tengd varða mik­il­væga almanna­hags­muni telur Seðla­bank­inn að góð og gild rök séu fyrir því að birta þessi skjöl nú með þessum hætt­i.“

Auglýsing

Hægt er að lesa und­an­þágu Kaup­þings frá gjald­eyr­is­lögum hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent