Þórdís býður sig fram í varaformann Sjálfstæðisflokksins

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, býður sig fram til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram 16. - 18. mars þar sem kosið verður um forystu flokksins.

7DM_0408_raw_2100.JPG
Auglýsing

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, býður sig fram til emb­ættis vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá Þór­dísi.



Hún seg­ist þakk­lát fyrir að hafa fengið að gegna marg­vís­legum trún­að­ar­störfum fyrir flokk­inn á und­an­förnum árum en hún hefur verið fram­kvæmda­stjóri þing­flokks sjálf­stæð­is­manna, aðstoð­ar­maður Ólafar Nor­dal dóms­mála­ráð­herra og fram­bjóð­andi í tvennum alþing­is­kosn­ingum auk þess að fá emb­ætti ráð­herra í tveimur rík­is­stjórn­um. „Þetta hafa verið krefj­andi verk­efni en fyrst og fremst gef­andi, því að það er í senn ástríða mín og for­rétt­indi að vinna að fram­gangi sjálf­stæð­is­stefn­unn­ar, eiga sam­töl og sam­vinnu við fólk og hlúa að fram­tíð og tæki­færum íslensks sam­fé­lags,“ segir Þór­dís. Hún segir það hafa verið dýr­mætt að fá hvatn­ingu víða að og hún vegur þungt í hennar ákvörð­un. „Ég hlakka til að eiga sam­töl við sem flesta á næstu dögum og vikum um sókn­ar­færi okkar Sjálf­stæð­is­manna.“



Lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins fer fram 16. - 18. mars þar sem kosið verður um for­ystu flokks­ins. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins gegnir nú tíma­bundið emb­ætti vara­for­manns eftir and­lát Ólafar Nor­dal.

Auglýsing


Ekki fleiri hafa lýst yfir fram­boði í emb­ættið enn, en í Morg­un­blað­inu í gær sagð­ist Har­aldur Bene­dikts­son vera að hugsa málið eftir hvatn­ingu þess efnis frá mörg­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent