Kjarninn tilnefndur til blaðamannaverðlauna

Þórður Snær Júlíússon, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Magnús Halldórsson eru tilnefnd til verðlauna.

Landsréttur
Auglýsing

Rit­stjórn Kjarn­ans, Magnús Hall­dórs­son, Þórður Snær Júl­í­us­son rit­stjóri og Þór­unn Elísa­bet Boga­dótt­ir, eru til­nefnd til Blaða­manna­verð­launa Blaða­manna­fé­lags Íslands 2017.

Eft­ir­far­andi fá til­nefn­ingar til verð­launa.

Til­nefn­ingar til verð­launa eru eft­ir­far­andi:

Dóm­nefnd Blaða­manna­verð­launa BÍ hefur kynnt til­nefn­ingar sínar til Blaða­manna­verð­launa. Verð­launin eru veitt í fjórum flokkum en dóm­nefnd gerir þrjár til­nefn­ingar í hverjum flokki og á laug­ar­dag eftir viku verður til­kynnt hverjir hreppa verð­launin í hverjum flokki. Til­nefn­ingar dóm­nefndar eru eft­ir­far­andi:

Við­tal árs­ins

Jóhann Páll Jóhanns­son, Stund­inni

Fyrir áhrifa­mikið við­tal við Sig­ur­laugu Hreins­dótt­ur, móður Birnu Brjáns­dótt­ur, þar sem hún segir frá lífs­hlaupi dóttur sinn­ar, miss­in­um, sorg­inni og við­brögðum sam­fé­lags­ins.

Júlía Mar­grét Alex­and­ers­dótt­ir, Morg­un­blað­inu

Fyrir ein­lægt við­tal við Sig­ur­björgu Sig­ur­geirs­dóttur þar sem hún lýsir aðkomu og eft­ir­köstum þess að eig­in­maður henn­ar, Sig­ur­steinn Gunn­ars­son, svipti sig lífi árið 1997.

Vikt­oría Her­manns­dótt­ir, RÚV

Fyrir við­tal við Árna Jón Árna­son í þætt­inum Á ég bróður á Íslandi? Ein­stök og fal­leg inn­sýn í líf manns þegar hann fær þær fréttir að hann eigi hálf­bróður og hittir í fyrsta sinn.

Rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins

Alma Ómars­dótt­ir, RÚV

Fyrir upp­lýsandi og heild­stæða umfjöllun um hverjir hlutu upp­reist æru, hverjir væru með­mæl­endur þeirra og áhrif upp­reist­ar­innar á brota­þola.

Hörður Ægis­son, Frétta­blað­inu

Fyrir grein­ar­góða umfjöllun um við­skipti með hlutafé í Arion banka, ekki síst áhrif kaupa þriggja vog­un­ar­sjóða í bankanum.

Auglýsing

Ingi Freyr Vil­hjálms­son, Jóhann Páll Jóhanns­son og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, Stund­inni

Fyrir afhjúp­andi umfjöllun um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og fjöl­skyldu hans og náin tengsl við Glitni í aðdrag­anda banka­hruns.

Umfjöllun árs­ins

Jóhann Bjarni Kol­beins­son, RÚV

Fyrir grein­ar­góða umfjöllun um átak­an­legar aðstæður þeirra barna sem bjuggu á Kópa­vogs­hæl­inu á árunum 1952-1993, van­rækslu þeirra og ofbeldi sem þau voru beitt. 

Kjartan Hreinn Njáls­son, Stöð 2/365

Fyrir nýstár­lega umfjöllun um CRISPR/Cas9-erfða­tækn­ina og hvernig íslenskir vís­inda­menn beita henni til að þróa ný lyf og hvaða sið­ferði­legar spurn­ingar tæknin vek­ur.

Sunna Ósk Loga­dótt­ir, Morg­un­blað­inu

Fyrir að reifa skil­merki­lega hvernig raf­orku­þurrð til náinnar fram­tíðar kallar á ákvarð­anir um hvort draga þurfi úr notkun hennar eða virkja meira og ólík sjón­ar­mið þar um.

Blaða­manna­verð­laun

Magnús Hall­dórs­son, Þórður Snær Júl­í­us­son og Þór­unn Elísa­bet Boga­dótt­ir, Kjarn­anum

Fyrir grein­ar­góða umfjöllun um til­lögur dóms­mála­ráð­herra til Alþingis um skipan í stöður dóm­ara við hið nýja dóms­stig Lands­rétt.

Rit­stjórn, Stund­inni

Fyrir ítar­lega umfjöllun um upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­manna, áhrif þess á fórn­ar­lömb mann­anna og tregðu stjórn­valda til upp­lýs­inga­gjaf­ar.

Sig­ríður Haga­lín, RÚV

Fyrir upp­lýsandi umfjöllun um konur sem fengu mót­mæl­endur fyrir utan heim­ili sín í kjöl­far hruns­ins og mis­mun­andi við­horf mót­mæl­enda þegar þeir litu til baka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent