Stjórnvöld leggja til umbætur í þágu félagslegs stöðugleika

Stjórnvöld segjast tilbúin til margvíslegra aðgerða til að tryggja félagslegan stöðugleika á vinnumarkaði.

Bjarni Benediktsson Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Auglýsing

Stjórn­völd segj­ast til­búin í marg­vís­legar aðgerðir í þágu félags­legs stöð­ug­leika á almennum vinnu­mark­að­i. 

Í minn­is­blaði sem birt hefur verið á vef stjórn­valda, kemur fram að stjórn­völd séu meðal ann­ars til­búin til að styrkja sjóði eins og Ábyrgða­sjóð launa, Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð, Vinnu­staða­náms- og Fræðslu­sjóð. Þá er einnig tekið fram sér­stak­lega að stjórn­völd séu til­búin til aðgerða í gegnum tekju­skatts­kerf­ið.

Það verður einkum horft til þess að minnka skatt­byrði og „mögu­legar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi per­sónu­af­sláttar og sam­spili við bóta­kerfi sem ætlað er að styðja við tekju­lægri hópa (lág­tekjur og lægri milli­tekj­ur),“ eins og það er orðað í minn­is­blað­inu.  

Auglýsing

Sam­tal stjórn­valda við aðila vinnu­mark­að­ar­ins hófst í des­em­ber síð­ast­liðn­um, og hafa fundir verið haldnir um ein­stök mál, eins og félags­legar und­ir­stöð­ur, vinnu­mark­aðstengda sjóði og fjár­mögnun þeirra, mennta­mál, efna­hags­mál, kjara­ráð og und­ir­stöður launa­töl­fræði, að því er segir í minn­is­blað­in­u. 

Meðal þess sem horft er til, er að und­ir­bua upp­töku launa­upp­lýs­inga frá öllum launa­greið­endum að norskri fyr­ir­mynd. Þá er einnig horft til þess að útvíkka hlut­verk þjóð­hags­ráðs­ins til að tryggja sam­hengi og jafn­vægi efna­hags­legs og félags­legs stöð­ug­leika í umræðu um stjórn opin­berra fjár­mála, pen­inga­stefnu og kjara­mála.

Í minn­is­blað­inu er fjallað um þau fjögur atriði sem stjórn­völd eru til­búin að koma með að borð­inu, til að tryggja félags­legan stöð­ug­leika og meiri ró á almennum vinnu­mark­aði.

Þau fara orð­rétt, eins og þau koma fyrir í minn­is­blað­inu, hér á eft­ir.

 1. Ábyrgða­sjóður launa Stjórn­völd eru reiðu­búin til að hækka hámarks­fjár­hæð mán­að­ar­legra greiðslna úr Ábyrgða­sjóði launa án þess að sam­tímis sé hreyft við því gjaldi sem greitt er til sjóðs­ins. Hámarks­greiðsla er nú 385 þús. kr. á mán­uði vegna launa­missis í allt að 3 mán­uði, auk trygg­ingar á greiðslu orlofs allt að 617 þús. kr. Há­marks­greiðsla á mán­uði verður 633 þús. kr. og gildir frá 1. júlí 2018. 

2. Atvinnu­leys­is­trygg­ingar At­vinnu­leys­is­bætur verða hækk­aðar og stofnað verður til sam­ráðs milli stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins um skil­grein­ingu á jafn­að­ar­gjaldi í Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð þar sem horft er til­ ­sjálf­bærni sjóðs­ins til lengri tíma litið og sveiflu­jöfn­un­ar­hlut­verks hans í hag­stjórn­ar­legu til­lit­i. Á­kvörðun um breyt­ingar á fjár­hæðum atvinnu­leys­is­trygg­inga felur í sér að bætur hækki og verði 90% af dag­vinnu­tekju­trygg­ingu og tekur breyt­ingin gildi frá 1. maí nk.. ­Sér­stakur starfs­hóp­ur, skip­aður full­trúum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is, vel­ferð­ar­ráðu­neytis og ­full­trúum aðila vinnu­mark­að­ar­ins, fær það hlut­verk að leggja mat á stöðu Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs og gera til­lögur um þau hlut­lægu við­mið sem lögð verði til grund­vallar ákvörðun um at­vinnu­leys­is­trygg­inga­gjald til lengri tíma og yfir hag­sveifl­una. Sjóð­ur­inn gegnir mik­il­vægu hlut­verki til­ efna­hags­legrar sveiflu­jöfn­un­ar. Í tengslum við þessa vinnu verði hugað að mögu­legri stytt­ing­u ­bóta­tíma­bils­ins í 24 mán­uði þannig að það verði sam­bæri­legt við það sem ger­ist ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­un­um. Starfs­hóp­ur­inn skal skila af sér í haust. 

3. Tekju­skatts­kerfið Hafin verður end­ur­skoðun á tekju­skatts­kerf­inu með áherslu á lækkun skatt­byrði og mögu­leg­ar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi per­sónu­af­sláttar og sam­spili við bóta­kerfi sem ætlað er að styðja við ­tekju­lægri hópa (lág­tekjur og lægri milli­tekj­ur). Meðal þess sem skoðað verður er að sett verði á fót heild­stætt kerfi er taki jafnt til stuðn­ings hins opin­bera við barna­fjöl­skyldur og stuðn­ings vegna hús­næð­is­kostn­að­ar, hvort heldur er fyrir íbúð­ar­eig­endur eða leigj­end­ur. Þessi vinna verður und­ir­ ­for­ystu fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis í sam­starfi við sam­tök laun­þega í því skyni að sem breiðust ­sam­staða geti náðst um áherslur og end­an­legar breyt­ing­ar. Ætl­unin er að ljúka þess­ari vinnu á haust­mán­uðum 2018 áður en fjár­lög árs­ins 2019 verða afgreidd. ­Stjórn­völd skuld­binda sig til sam­tals um skatt­lagn­ingu greiðslna úr sjúkra­sjóð­um. Kann­aðir verð­i ­mögu­leikar á því að tryggja skatt­leysi slíkra greiðslna til launþega vegna heil­brigð­is­þjón­ustu, svo sem sál­fræði­þjón­ustu og tann­lækn­inga, án nei­kvæðra áhrifa á skatt­fram­kvæmd. 

4. Fræðslu­sjóður og Vinnu­staða­náms­sjóður Gerð verður úttekt á stöðu Fræðslu­sjóðs og Vinnu­staða­náms­sjóðs með til­liti til skil­virkni og árang­ur­s. ­Sam­staða er um að tryggja verði námsúr­ræði og tæki­færi fyrir þá sem litla menntun hafa á vinnu­mark­aði og að sér­stak­lega þurfi að tryggja að nám þeirra sem stunda starfs- eða verk­nám á vinnu­stað sé í sam­ræmi við skil­greind náms- og færni­mark­mið. Ef sýnt er að auk­inna fjár­muna sé þörf til að tryggja þessi mark­mið munu stjórn­völd bregð­ast við því. Þess­ari vinnu mun ljúka á haust­mán­uðum 2018 áður en fjár­lög árs­ins 2019 verða afgreidd. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent