Stjórn og trúnaðarráð VR samþykktu á fundi sínum ályktun þess efnis að forsendur kjarasamninga séu brostnar og að óbreyttu beri að segja þeim upp. „Augljóst má vera að aðrir launahópar hafa fengið launahækkanir sem eru umfram þær hækkanir sem félagar í VR hafa fengið á viðmiðunartímabili gildandi kjarasamninga,“ segir í ályktun frá VR.
Sá segir einnig að fundurinn krefjist þess að „kjarasamningar verði endurskoðaðir þannig að forsenduákvæði haldi“, ella komi til uppsagnar og er formanni VR, Ragnari Þór Ingólfssyni, veitt fullt umboð fundarins til þess að meta slíkt ef tilboð er lagt á borð samninganefndar miðvikudaginn 28. febrúar 2018. „Komi ekkert ásættanlegt tilboð sem rétt getur af þann forsendubrest sem orðið hefur leggur trúnaðarráð VR til að samningum verði sagt upp áður en að frestur til þess rennur út og þá verði krafa okkar í viðræðum sú að laun hækki í samræmi við ákvörðun Kjararáðs um hækkun þingmanna og æðstu embættismanna ríkisins,“ segir í ályktun fundarins.