Sjóðsfélögum í Lífsverki mun frá og með deginum í dag gefast færi á 85 prósent fasteignalánum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lífsverki.
Stjórn Lífsverks hefur samþykkt nýjar lánareglur fyrir sjóðinn sem taka gildi í dag, 1. mars. Nú gefst sjóðsfélögum, sem eru að kaupa sína fyrstu eign, kostur á láni upp að 85 prósenta veðhlutfalli af söluvirði samkvæmt kaupsamningi. Þetta er breyting frá því sem áður var en hámarksveðhlutfall var 75 prósent af söluvirði. Með þessari breytingu vill stjórn sjóðsins koma sérstaklega til móts við þá sjóðfélaga sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign.
Samkvæmt tilkynningunni verður hámark viðbótarláns vegna fyrstu kaupa 5 milljónir króna, miðað við 75 til 85 prósenta veðhlutfall. Vextir viðbótarlána bera 0,6 prósenta álag á vexti grunnlána hjá sjóðnum, sem eru nú 3,50 prósent á verðtryggðum lánum og 5,70 prósent á óverðtryggðum lánum. Hægt er að taka grunnlán hjá sjóðnum fyrir allt að 45 milljónir króna.
Samhliða þessum breytingum hefur verið ákveðið að bjóða nýjan flokk verðtryggðra lána með föstum vöxtum út lánstímann. Sjóðfélagar geta því valið milli verðtryggðra lána með breytilegum eða föstum vöxtum, eða óverðtryggðra lána með breytilegum vöxtum.
Þá er ekki skilyrði lengur að greiða þurfi iðgjöld í 4 mánuði til að öðlast lánsrétt hjá sjóðnum. Nóg er að vera sjóðfélagi en greiða þarf lágmarksiðgjald á ári til að njóta bestu kjara. Lífeyrisþegar hjá sjóðnum eiga einnig lánsrétt, sem og þeir sem eingöngu greiða viðbótarsparnað til sjóðsins.
Lífsverk er opinn lífeyrissjóður háskólamenntaðra en allir sem hafa lokið grunnnámi á háskólastigi geta sótt um aðild. Sjóðsfélagar njóta hagstæðs réttindaávinnings og geta valið um að setja hluta af skylduiðgjaldi í séreign. Allir stjórnarmenn Lífsverks eru sjóðfélagar og eru kosnir af sjóðfélögum sjálfum í rafrænum kosningum.