Bjóða 85% fasteignalán fyrir háskólamenntaða

Sjóðsfélögum í Lífsverki mun frá og með deginum í dag gefast færi á 85 prósent lánum við kaup á fyrstu fasteign.

hús íbúð fasteignir
Auglýsing

Sjóðs­fé­lögum í Lífs­verki mun frá og með deg­inum í dag gef­ast færi á 85 pró­sent fast­eigna­lán­um. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Lífs­verki.

Stjórn Lífs­verks hefur sam­þykkt nýjar lána­reglur fyrir sjóð­inn sem taka gildi í dag, 1. mars. Nú gefst sjóðs­fé­lög­um, sem eru að kaupa sína fyrstu eign, kostur á láni upp að 85 pró­senta veð­hlut­falli af sölu­virði sam­kvæmt kaup­samn­ingi. Þetta er breyt­ing frá því sem áður var en hámarks­veð­hlut­fall var 75 pró­sent af sölu­virði. Með þess­ari breyt­ingu vill stjórn sjóðs­ins koma sér­stak­lega til móts við þá sjóð­fé­laga sem eru að kaupa sína fyrstu fast­eign.

Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni verður hámark við­bót­ar­láns vegna fyrstu kaupa 5 millj­ónir króna, miðað við 75 til 85 pró­senta veð­hlut­fall. Vextir við­bót­ar­lána bera 0,6 pró­senta álag á vexti grunn­lána hjá sjóðn­um, sem eru nú 3,50 pró­sent á verð­tryggðum lánum og 5,70 pró­sent á óverð­tryggðum lán­um. Hægt er að taka grunn­lán hjá sjóðnum fyrir allt að 45 millj­ónir króna.

Auglýsing

Sam­hliða þessum breyt­ingum hefur verið ákveðið að bjóða nýjan flokk verð­tryggðra lána með föstum vöxtum út láns­tím­ann. Sjóð­fé­lagar geta því valið milli verð­tryggðra lána með breyti­legum eða föstum vöxt­um, eða óverð­tryggðra lána með breyti­legum vöxt­um.

Þá er ekki skil­yrði lengur að greiða þurfi iðgjöld í 4 mán­uði til að öðl­ast láns­rétt hjá sjóðn­um. Nóg er að vera sjóð­fé­lagi en greiða þarf lág­marks­ið­gjald á ári til að njóta bestu kjara. Líf­eyr­is­þegar hjá sjóðnum eiga einnig láns­rétt, sem og þeir sem ein­göngu greiða við­bót­ar­sparnað til sjóðs­ins.

Lífs­verk er opinn líf­eyr­is­sjóður háskóla­mennt­aðra en allir sem hafa lokið grunn­námi á háskóla­stigi geta sótt um aðild. Sjóðs­fé­lagar njóta hag­stæðs rétt­inda­á­vinn­ings og geta valið um að setja hluta af skyldu­ið­gjaldi í sér­eign. Allir stjórn­ar­menn Lífs­verks eru sjóð­fé­lagar og eru kosnir af sjóð­fé­lögum sjálfum í raf­rænum kosn­ing­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent