Vegna mistaka verður staða forstöðumanns Kvikmyndasjóðs ekki auglýst

Skipunartími núverandi forstöðumanns framlengdist sjálfkrafa.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir
Auglýsing

Emb­ætti for­stöðu­manns Kvik­mynda­sjóðs verður ekki aug­lýst laust til umsókn­ar, eins og hags­muna­að­ilar í grein­inni hafa hvatt til, vegna mis­taka sem gerð voru í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­in­u. 

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag, og stað­festir Lilja Dögg Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, þetta við blað­ið.

Í Frétta­blað­inu hinn 24. jan­úar var greint frá því að hags­muna­að­ilar í kvik­mynda­iðn­að­inum hefðu skor­að á mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra að aug­lýsa starf for­stöðu­manns ­Kvik­mynda­mið­stöðv­ar Ís­lands laust til umsókn­ar áður en ­skip­un­ar­tími Lauf­eyjar Guð­jóns­dótt­ur rynni út. 

Auglýsing

Ef aug­lýsa á starf­ið þarf, sam­kvæmt 23. grein laga um rétt­indi og skyldur opin­berra starfs­manna, að til­kynna núver­andi for­stöðu­mann­i það sex mán­uð­u­m áður en skip­un­ar­tím­inn rennur út.

Vegna mis­tak­anna sem Lilja vís­ar til í við­tali við Frétta­blað­inu verður stað­an ekki aug­lýst. „Þau ­fel­ast í því að í bréfi mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins ­sem dag­sett var 8. ágúst 2007 var skip­un­ar­tími Lauf­eyj­ar ­sagður fram­lengj­ast til 17. ágúst 2013 í stað 17. febr­úar 2013 eins og hefði átt að vera. Sú loka­dag­setn­ing var skráð í ráðu­neyt­in­u. End­ur­skipan Lauf­eyjar árið 2013 var svo skráð 17. ágúst 2013 til 17. ágúst 2018, en hefði átt að vera til­ 17. febr­ú­ar. Þetta þýðir að það hefð­i átt að vera búið að aug­lýsa stöð­una ­fyrir 17. ágúst á síð­asta ári en ekki 17. febr­úar síð­ast­lið­inn. Ráðu­neytið telur sig eiga að ber­a hall­ann af mis­tök­un­um. Því fram­leng­ist ráðn­ing­ar­tími Lauf­eyj­ar ­sjálf­krafa til árs­ins 2023. Ráðu­neyt­ið ­fékk auk þess utan­að­kom­andi lög­fræði­á­lit ­sem stað­festi þessa túlk­un,“ segir í Frétta­blað­inu.

Lilja segir við Frétta­blaðið að hún telji það eðli­leg­ast, að aug­lýsa störf for­stöðu­manna rík­is­stofn­anna, til að tryggja fag­legt mat. Í þessu til­felli hafi staðan sem uppi var, komið í veg fyrir að það hafi verið hægt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent