ASÍ mótmælir of háu greiðsluþaki sjúklinga og hækkun frá 1. mars á þakinu um 2 prósent á sama tíma og komugjald á sjúkrahúsi var hækkað um 2,3 til 3,2 prósent.
Í yfirlýsingu frá ASÍ kemur fram að einingarverð sjálfstætt starfandi sérfræðilækna hækkað um tæp 5 prósent frá því nýja greiðsluþátttökukerfið tók gildi í fyrra. ASÍ segir þessar hækkanir koma í kjölfarið af fréttum um aukna greiðsluþátttöku lífeyrisþega sem nemi um 16 prósent fyrir hópinn í heild og megi meðal annars rekja til kostnaðar við þjónustu sérfræðilækna.
Í nýútkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar um „Sjúkratryggingar Íslands sem kaupanda heilbrigðisþjónustu“ er bent á að fullnægjandi greiningu vanti þegar stofnunin gerir samninga um kaup á heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega er bent á rammasamning við sjúkraþjálfara og sjálfstætt starfandi lækna í þessu samhengi. Í úttekt Ríkisendurskoðunar er bent á að samningurinn við lækna sé „án skýrra takmarkana um magn“ og feli í sér „fjárhagslega hvata til mikilla afkasta óháð gæðum og árangri“.
Viðbrögð Sjúkratrygginga voru að boða uppsögn á rammasamningum við sjálfstætt starfandi sérfræðilækna og sjúkraþjálfara með sex mánaða fyrirvara. Enn hefur þó ekki komið til uppsagnar en í frétt frá stofnuninni segir að það verði ekki gert fyrr en velferðarráðuneytið hafi tekið afstöðu til nauðsynlegra aðhaldsaðgerða í samræmi við fjárlög 2018.
Í áðurnefndri skýrslu Ríkisendurskoðunar er fjallað um skort á stefnumótun af hálfu stjórnvalda og veikleika í þarfagreiningu og gæðaviðmiðum við samningagerð Sjúkratrygginga. Viðbrögð stjórnvalda eru, enn á ný, að velta auknum kostnaði yfir á sjúklinga.
ASÍ mótmælir of háu greiðsluþaki sjúklinga og bendir á að hlutfallslega fleiri fresti læknisheimsóknum hér á landi en á hinum Norðurlöndunum vegna kostnaðar. Hækkun á greiðsluþátttöku muni auka enn á þennan vanda. ASÍ skorar á stjórnvöld að hætta við þessa hækkun, sem bitni verst á þeim tekjulægstu, og auki ójöfnuð enn frekar.