Leyfi Eykon til olíuleitar á Drekasvæðinu afturkallað

Orkustofnun hefur afturkallað leyfi Eykon Energy til olíuleitar og vinnslu á Drekasvæðinu á þeim grundvelli að félagið hafi hvorki tæknilega né fjárhagslega getu til að takast eitt á við kröfur og skilmála leyfisins eða vera rekstraraðili þess.

olíuborpallur
Auglýsing

Orku­stofnun hefur aft­ur­kallað leyfi Eykon Energy til olíu­leitar og vinnslu á Dreka­svæð­inu á þeim grund­velli að félagið hafi hvorki tækni­lega né fjár­hags­lega getu til að takast eitt á við kröfur og skil­mála leyf­is­ins eða vera rekstr­ar­að­ili þess. Þannig upp­fylli félagið ekki skil­yrði kol­vetn­islaga. Þetta kemur fram á heima­síðu Orku­stofn­unar.

Félögin CNOOC Iceland ehf. og Petoro Iceland AS hafa áður dregið sig út úr leyfi til olíu­leitar og vinnslu á svæð­inu.

Í frétt­inni segir að stofn­unin telji sér ekki heim­ilt að verða við þeirri ósk Eykon Energy ehf. að félagið fái sér­stakan frest til að finna sér nýjan rekstr­ar­að­ila til sam­starfs um olíu­leit á Dreka­svæð­inu. Það bryti í bága við jafn­ræð­is­reglu stjórn­sýslu­rétt­ar­ins og ákvæði kol­vetn­islaga, að veita nýjum aðila for­gang að sér­leyfi á Dreka­svæð­inu, án aug­lýs­ing­ar. Að jafn­aði skal aug­lýsa eftir umsækj­end­um, áður en leyfi til rann­sókna og vinnslu á kol­vetnum er veitt.

Auglýsing

Orku­stofnun hefur í bréfi sínu í dag til Eykon Energy ehf. bent á að finni félagið sam­starfs­að­ila eða ef aðrir mögu­legir áhuga­að­ilar um leit og vinnslu kol­vetna á Dreka­svæð­inu óski þar eftir sér­leyfi, muni Orku­stofnun ígrunda að birta aug­lýs­ingu um skil­mála nýrra leyfa á lög­form­legan hátt. Svæðið yrði þá opið til umsókna, í sam­ræmi við ákvæði kol­vetn­islaga, án sér­staks útboðs.

Í sam­tali við mbl.is í jan­úar á þessu ári sagði Heiðar Guð­jóns­son, fjár­festir og stjórn­ar­for­maður Eykon, að sam­starf félags hans, CNOOC og Petoro hafi verið til fyr­ir­mynd­ar, þar til tvö síð­ar­nefndu fyr­ir­tækin drógu sig út úr leyfi til rann­sókna og vinnslu á kol­vetni á Dreka­svæð­inu.

Á þessum tíma til­kynnti Orku­stofnun Eykon nið­ur­stöðu sína, sem nú hefur verið stað­fest og leyfið aft­ur­kall­að. Heiðar sagði í jan­úar að Eykon hafi þá þegar byrjað hafa sam­band við stór­fyr­ir­tæki í olíu­leit og fyr­ir­tækið sé ósam­mála mati Orku­stofn­unar að það geti ekki haldið áfram með leyf­ið. „Mér finnst Orku­­stofn­un vera að reyna að loka þessu máli frek­ar en að leyfa því að halda áfram sem mér fynd­ist heppi­­legra fyr­ir land og þjóð,“ sagði Heiðar og sagð­ist ekki ætla að leggja árar í bát - hann væri alltaf bjart­sýnn.

Þrjú sér­­­leyfi voru árið 2013 veitt til leit­ar og vinnslu á olíu á Dreka­­svæð­inu. Þeim hefur nú öllum verið annað hvort skilað til stjórn­valda eða aft­ur­köll­uð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent