Vegna umræðu sem orðið hefur í fjölmiðlum eftir birtingu upplýsinga á vefAlþingis sl. föstudag um endurgreiðslu ferðakostnaðar þingmanna innan lands vill skrifstofan árétta að upphæðir sem þar voru birtar fyrir janúarmánuð 2018 miðuðust við hvenær reikningar voru bókaðir á skrifstofu Alþingis.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis.
Tekið er fram „að ýmsir reikningar fyrir ferðaútgjöld innan lands sem stofnað var til á síðari hluta ársins 2017 bárust ekki skrifstofunni fyrr en í janúar 2018 og voru því bókaðir á þann mánuð,“ eins og orðrétt segir á vef Alþingis.
Endurgreiddur ferðakostnaður þeirra þingmanna „sem þannig er ástatt um“, eins og það er orðað í tilkynningu Alþingis, skiptist hins vegar með eftirfarandi hætti milli síðari hluta ársins 2017 og janúar 2018: